Hoppa yfir valmynd
3. júní 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 1/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 3. júní 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 1/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að kærandi, A, sótti um atvinnuleysisbætur 27. ágúst 2009 og var fallist á umsókn hennar en greiðslu til hennar frestað í 40 daga. Ákvörðun Vinnumálastofnunar þessa efnis var tilkynnt kæranda með bréfi dags. 8. október 2009 með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þessari ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi dags. 5. janúar 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og hún krefst þess einnig að tekið verði tillit til þess tíma sem leið frá starfslokum til skráningar á atvinnuleysisskrá. Hún óskar einnig endurskoðunar á ákvörðun um 75% starfshlutfall. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Samkvæmt vottorði vinnuveitenda starfaði kærandi sem deildarstjóri B-sviðs C-háskóla á tímabilinu 16. febrúar 2006 til 16. september 2007, 17. mars 2008 til 30. september 2008 og frá 1. október 2008 til 15. febrúar 2009. Á fyrstu tveimur tímabilunum var kærandi í 85% starfshlutfalli en 50% starfshlutfalli á síðastnefnda tímabilinu. Kærandi var í launalausu leyfi frá 15. febrúar 2009 til lok apríl sama árs en þá sagði hún upp störfum. Hún sótti um atvinnuleysisbætur 27. ágúst 2009. Í bréfi kæranda til Vinnumálastofnunar um ástæður uppsagnar hennar, dags. 9. september 2009, kemur fram að henni hafi fundist, eftir að hún kom aftur til starfa eftir að hafa lokið námi í mannauðsstjórnun árið 2008, að engin breyting hafi orðið á starfssviði hennar og verkefnin hvorki nógu krefjandi né nógu mörg. Eftir að hafa ítrekað óskað eftir verkefnum á því sviði sem menntun hennar hafi náð yfir án árangurs hafi kærandi ákveðið að huga að atvinnuleit á sínu sviði. Þetta hafi verið í febrúar 2009 og atvinnuhorfur ekki góðar í þjóðfélaginu. Því hafi hún tekið þá ákvörðun að óska eftir launalausu leyfi til að ljúka meistaraprófsritgerð.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 6. maí 2010, er bent á að ákvörðunin um niðurfellingu bótaréttar hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan sé matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Það sé ljóst að kærandi hafi sagt upp starfi sínu hjá vinnuveitanda. Ágreiningurinn snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir.

Af hálfu Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi tekið ákvörðun um að hætta starfi sínu og leita atvinnutækifæra í samræmi við menntun sína og áhugasvið. Kærandi hafi ekki tryggt sér starf er hún hafi hætt í vinnu sinni hjá C-háskóla. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að kæranda hafi mátt vera ljóst að með því að segja starfi sínu lausu á þeim tímum sem nú eru gæti verið erfiðleikum bundið fyrir kæranda að komast í annað starf. Vinnumálastofnun telji að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í kæru til úrskurðarnefndarinnar óski kærandi eftir því að bótaútreikningur hennar sé endurskoðaður. Útreikningur á bótarétti kæranda að teknu tilliti til starfshlutfalls og starfstíma kæranda fylgi gögnum málsins og telji Vinnumálastofnun ekki þörf á að fjalla sérstaklega um þann lið kærunnar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 10. maí 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 25. maí 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur meðal annars að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi sagði sjálf starfi sínu lausu hjá C-háskóla. Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ekki hafi verið í ljós leitt að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga.

Það er frumskilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur að sækja um bæturnar, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 1. mgr. 29. gr. laganna getur sá, sem rétt á að fá greiddar bætur, átt þann rétt samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Kærandi gat samkvæmt þessu ekki öðlast rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en Vinnumálastofnun tók á móti umsókn hennar. Kröfu hennar um að fá greiddar bætur frá því að hún sagði upp til þess tíma sem hún kaus að sækja um atvinnuleysisbætur 27. ágúst 2009 er því hafnað.

Í samræmi við röksemdir Vinnumálastofnunar telst bótahlutfall kæranda 75%.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar samkvæmt bréfi dags. 8. október 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum