Hoppa yfir valmynd
18. maí 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 33/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 18. maí 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 33/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 9. mars 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 24. febrúar 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 14. desember 2009. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hennar til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi mótteknu 26. febrúar 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 28. júlí 2008, en hóf síðan störf hjá X hf. þann 14. september 2009. Í kæru kæranda koma fram umkvartanir um aðstæður á vinnustaðnum X hf., svo sem vegna mikils vinnuálags. Kærandi neitar því alfarið að hún hafi ekki staðið sig í vinnunni. Kærandi hætti störfum meðan á reynslutíma stóð og skráði sig atvinnulausa á ný þann 14. desember 2009. Í vottorði vinnuveitanda, dags. 16. desember 2009, kemur fram að kærandi hafi starfað á vinnustaðnum frá 14. september til 28. október 2009. Hún hafi látið af störfum vegna þess að um tímabundna ráðningu hafi verið að ræða. Enn fremur kemur þar fram að kærandi hafi enn verið á reynslutíma þegar hún hafi gefist upp og ákveðið að hætta. Vinnumálastofnun óskaði skýringa á uppsögn kæranda með bréfi, dags. 19. desember 2009. Vinnueftirlitið gerði athugasemdir við vinnuumhverfi X hf. að ósk kæranda, sbr. bréf dags. 25. janúar 2010. Gerðar voru athugasemdir við hávaða frá kæli, hitastig í vinnurými, afgreiðslukassa og aðstæður á lager og að ekki lægi fyrir áhættumat vegna starfseminnar.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 20. apríl 2010, er vísað í 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þess getið að í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Það sé óumdeilt að kærandi hafi sagt upp starfi sínu hjá vinnuveitanda. Ágreiningurinn snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir.

Í greinargerðinni kemur fram að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu þann 28. október 2009 samkvæmt vottorði vinnuveitanda. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar og í kæru sinni til úrskurðarnefndar segi kærandi meðal annars að aðstæður á vinnustað hafi átt stærstan þátt í þeirri ákvörðun hennar að hætta störfum. Samkvæmt gögnum frá Vinnueftirlitinu hafi stofnunin gert athugasemdir við vinnuumhverfi kæranda þann 22. október 2009 eða fjórum virkum dögum áður en kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá fyrirtækinu. Þá hafi kærandi ekki haft samband við stéttarfélag sitt vegna framangreindra annmarka. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að launamenn skuli í samstarfi við stéttarfélag sitt, í það minnsta gera tilraun til þess að leysa þann ágreining sem upp komi milli vinnuveitenda og launþega áður en þeir segi starfi sínu lausu. Þá telji Vinnumálastofnun að kærandi hafi ekki veitt vinnuveitanda raunverulegt tækifæri til að bregðast við athugasemdum Vinnueftirlitsins.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að ágreiningur milli launamanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma, aðstæður á vinnustað flokkist almennt ekki sem gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þrátt fyrir augljósa ágalla á vinnuumhverfi kæranda telji Vinnumálastofnun að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni, teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 23. apríl 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 7. maí 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Með vísan til framanritaðs og röksemda sem færðar hafa verið fram fyrir hinni kærðu ákvörðun af hálfu Vinnumálastofnunar, er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 24. febrúar 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum