Hoppa yfir valmynd
30. mars 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 114/2009

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 30. mars 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 114/2009.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 13. október 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 12. október 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 1. september 2009. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hennar til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 30. október 2009. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Samkvæmt vottorði vinnuveitanda, X, dags. 2. september 2009, starfaði kærandi hjá fyrirtækinu í fullu starfi frá 1. janúar 2006 til 20. febrúar 2009 og frá þeim tíma til 19. ágúst 2009 var hún í fæðingarorlofi. Hún sagði sjálf upp störfum. Af hálfu kæranda kemur fram að hún hafi sagt starfi sínu lausu þar sem hún hafi ekki getað unnið átta tíma vaktir í Reykjavík, en hún hafi flust til Akraness. Ætti hún að uppfylla kröfur fyrirtækisins um átta tíma vaktir þyrfti hún að fá barnagæslu í tíu og hálfa klukkustund hjá dagmömmu. Hún kveðst vera með tvö börn og annað sé í grunnskóla á Akranesi. Kæmi eitthvað uppá væri langt að fara og maður hennar vinni einnig í Reykjavík.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 25. febrúar 2010, er vísað í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ágreiningurinn í máli þessu snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi lagagreinarinnar. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Kæranda hafi mátt vera ljóst að með því að segja starfi sínu lausu á þeim tímum sem nú eru, gæti verið erfiðleikum bundið fyrir hana að komast í annað starf. Vinnumálastofnun telur að uppsögn kæranda á starfi sínu megi rekja til ákvarðana sem hún tók sjálf og það sé mat stofnunarinnar að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni, teljist ekki gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 1. mars 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 15. mars 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Með vísan til framanritaðs og röksemda sem færðar hafa verið fram fyrir hinni kærðu ákvörðun af hálfu Vinnumálastofnunar, er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 12. október 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum