Hoppa yfir valmynd
11. mars 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 109/2009

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 11. mars 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 109/2009.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 25. september 2009, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 23. september 2009 fjallað um fjarveru kæranda á kynningarfundi hjá Vinnumálastofnun þann 28. ágúst 2009. Vegna fjarveru kæranda var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í 40 daga frá og með degi ákvörðunarinnar þann 22. september 2009 sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi mótteknu 21. október 2009. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 2. júní 2009. Hann var boðaður á kynningarfund hjá stofnuninni þann 28. ágúst 2009, með bréfi dags. 21. ágúst 2009. Í boðunarbréfinu var kæranda bent á að það gæti valdið missi bóta ef boðunum í viðtöl hjá stofnuninni væri ekki sinnt. Kærandi mætti ekki á fundinn. Í erindi kæranda til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, mótteknu 22. október 2009, kemur fram að hann hafi misst af fundi Vinnumálastofnunar og fyrir vikið missi hann af bótum en það telji hann vera mjög ósanngjarnt. Hann kveðst eiga heim í sveit og ekki hafa bíl til umráða. Kostnaður við að mæta á fundinn hefði því verið hár.

Í bréfi Vinnumálastofnunar til kæranda, dags. 31. ágúst 2009, var kæranda gefinn kostur á að skila inn skriflegum skýringum á fjarveru sinni á kynningarfundi þeim sem hann var boðaður á. Í bréfi kæranda til Vinnumálastofnunar, sem var móttekið þann 16. september 2009, kemur fram að hann hafi ekki fengið bréf stofnunarinnar í hendur vegna þess að móðir hans hafi haldið að um væri að ræða launaseðil. Bréfið hafi týnst og hann því ekki vitað af fundinum.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 23. febrúar 2010, kemur fram að í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta 40 daga biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Kærandi hafi látið hjá líða að mæta á fund er Vinnumálastofnun hafi gert honum að mæta á þann 28. ágúst 2009. Í skýringarbréfi kæranda sem barst Vinnumálastofnun þann 16. september 2009 segi hann fjarveru sína á fundi stofnunarinnar stafa af því að hann hafi ekki kynnt sér innihald boðunarbréfs þar sem móðir hans hafi talið að um launaseðil frá stofnuninni væri að ræða. Í kæru til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða taki kærandi fram að hann sé búsettur úti í sveit og hafi ekki bifreið til umráða. Það sé grundvallarskilyrði þess að unnt sé að aðstoða atvinnuleitanda við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að hann sinni þeim boðunum og ábendingum sem sannanlega eru sendar með viðurkenndum hætti. Hljóti það að teljast liður í virkri atvinnuleit að kynna sér innihald bréfasamskipta frá stofnuninni. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að hvorki skýring sú er kærandi taki fram í bréfi sínu til stofnunarinnar né í kæru til úrskurðarnefndarinnar geti réttlætt fjarveru kæranda á fundi stofnunarinnar þann 28. ágúst 2009. Með fjarveru sinni hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 26. febrúar 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 5. mars 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist þeir þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er virk atvinnuleit skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Til að geta talist vera í virkri atvinnuleit þarf umsækjandi að hafa vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, sbr. g-lið 14. gr. laganna. Ekki er gert ráð fyrir undanþágum frá þessari skyldu, en gera verður ráð fyrir því að til slíkrar þátttöku sé boðað með eðlilegum hætti og kæranda almennt gert mögulegt að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Samkvæmt upplýsingum í kæru kæranda var ástæða þess að hann mætti ekki á fundinn sú að þar sem hann býr úti í sveit hafi verið of dýrt fyrir hann að sækja fundinn. Í bréfi til Vinnumálastofnunar, sem var móttekið þann 16. september 2009, var skýringin hins vegar sögð vera sú að móðir hans hafi talið bréfið vera launaseðil og því hent því. Hann hafi því ekki vitað af fundinum.

Af gögnum málsins virðist ljóst að boðunarbréf Vinnumálastofnunar barst kæranda með eðlilegum hætti. Í boðunarbréfinu var kæranda boðið að gera viðvart ef hann gæti ekki mætt á boðuðum fundartíma og tekið fram að með því að mæta ekki gæti hann misst rétt til bóta. Þær skýringar sem hann hefur gefið fyrir fjarvist sinni réttlæta ekki fjarveru hans af fundinum. Með hliðsjón af því sem að framan greinir ber að staðfesta niðurstöðu Vinnumálastofnunar.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 23. september 2009 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum