Hoppa yfir valmynd
11. mars 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 106/2009

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 11. mars 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 106/2009.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 19. september 2009, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, nú búsettri í Danmörku, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 16. september 2009 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 27. júlí 2009. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hennar til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 6. október 2009. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Í erindi kæranda kemur fram að hún telji að gildar ástæður hafi verið fyrir því að hún sagði starfi sínu lausu. Hún kveðst hafa gert það vegna þess að hún ætlaði að flytja úr landi. Ástæða þess sé persónuleg og tengist fjölskyldu hennar. Hún sé kennari og eigi góða möguleika á að finna starf tengt menntun sinni í Danmörku. Um leið geti hún betur séð yngstu dóttur sinni, sem enn sé undir lögaldri, farborða og jafnframt verið stuðningur við fjölskyldu sína í B-borg, en dætur hennar og barnabörn búi þar. Hún kveðst ekki geta sinnt fjölskyldu sinni í Danmörku og starfað á Íslandi og spyr hvort það sé ekki nægilega gild ástæða uppsagnar.

Samkvæmt bréfi Vinnumálastofnunar til kæranda, dags. 20. ágúst 2009, var afgreiðslu umsóknar um atvinnuleysisbætur frestað og óskað eftir skriflegri afstöðu hennar á ástæðum uppsagnarinnar. Svarbréf kæranda er dagsett 26. ágúst 2009.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 27. janúar 2010, er vísað í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fram kemur að ágreiningurinn snúist um það hvort ástæða uppsagnar kæranda teljist gild ástæða í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skýringar kæranda lúti aðallega að því að hún sé að flytja til Danmerkur ásamt dóttur sinni og hafi af þeim sökum sagt upp starfi sínu hjá C þann 31. júlí 2009. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Hafi kærandi ekki sýnt fram á að henni hafi staðið til boða annað starf erlendis þegar hún sagði starfi sínu lausu hjá C. Þá hafi kæranda mátt vera það ljóst að með því að segja starfi sínu lausu gæti verið erfiðleikum bundið fyrir hana að komast í aðra vinnu.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 28. janúar 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 11. febrúar 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Óumdeilt er í málinu að kærandi sagði sjálf upp starfi sínu í þeim tilgangi að finna vinnu erlendis. Ekki verður hins vegar séð að kærandi hafi tryggt sér starf erlendis þegar hún sagði fyrra starfi sínu lausu. Með hliðsjón af því er fallist á þá niðurstöðu Vinnumálastofnunar að ástæður kæranda fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga er því staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 16. september 2009 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum