Hoppa yfir valmynd
30. júní 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 21/2009

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 30. júní 2009 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 21/2009.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 9. febrúar 2009, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 2. febrúar 2009 fjallað um höfnun hennar á starfi þann 6. janúar 2009. Vegna höfnunarinnar var bótaréttur kæranda felldur niður frá og með degi höfnunar í 40 daga sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, ódagsettu en mótteknu 20. febrúar 2009. Hún krefst þess að mál hennar verði tekið til endurskoðunar. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi skráði sig á atvinnuleysisskrá 10. september 2008. Henni bauðst starf sem fiskvinnslukona hjá X þann 8. desember 2008 en hún hafnaði því, sbr. útfyllt eyðublað Svæðisvinnumiðlunar S, nefnt „Boðun í atvinnuviðtal“, dags. 6. janúar 2009. Þar kemur einnig fram að ástæða höfnunarinnar voru liðverkir. Í læknisvottorði B, læknis á heilsugæslunni R, dags. 12. desember 2008, segir að kæranda sé ráðlagt að vinna ekki þar sem kulda gætir vegna heilsufarsvandamála. Samkvæmt læknisvottorði C, yfirlæknis á heilbrigðisstofnun Y, dags. 27. maí 2009, er kærandi andlega og líkamlega heilbrigð og getur unnið við öll almenn störf. Í vottorðinu kemur einnig fram að kærandi segist ekki geta unnið í miklum kulda og þá vegna liðverkja í fingrum. Kæranda bauðst síðan hlutastarf hjá Z sem hún þáði. Kærandi óskar að málið verði tekið fyrir á ný enda hafi upplýsingar um veikindi hennar legið fyrir hjá stofnuninni síðan u.þ.b. 10. janúar 2009. Í bréfi kæranda, dags. 27. desember 2008, segir að hún hafi ekki farið í atvinnuviðtal hjá X eins og henni bar að gera þar sem hún hafi nýlega orðið vör við liðverki í höndum og hafi hún af þeirri ástæðu ekki getað unnið í kulda.

Í athugasemdum Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 8. maí 2009, kemur fram að með bréfi, dags. 9. febrúar 2009, hafi kæranda verið tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að gera henni að sæta 40 daga biðtíma eftir atvinnuleysisbótum, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, á grundvelli þess að hún hafnaði starfi sem henni var boðið. Hafi það verið mat stofnunarinnar að ekki væru gildar ástæður fyrir höfnuninni. Enn fremur kemur fram af hálfu Vinnumála­stofnunar að í læknisvottorði frá heilsugæslunni R, dags. 12. desember 2008, komi fram að viðkomandi sé ráðlagt að vinna ekki þar sem kulda gætir vegna heilsufarsvandamáls. Með símtali þann 22. desember 2008 hafi starfsmaður Vinnumálastofnunar óskað eftir að kærandi sendi starfshæfnisvottorð og hafi sú ósk verið ítrekuð, nú síðast með bréfi dags. 22. apríl 2009. Vinnumálastofnun líti því svo á að höfnun kæranda á atvinnu leiði til þess að hún verði að sæta 40 daga biðtíma skv. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Telji Vinnumálastofnun að kærandi hafi ekki sýnt fram á með fullnægjandi hætti að höfnun hennar á starfinu geti verið réttlætanleg á grundvelli 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með bréfi Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 28. maí 2009, sendi stofnunin læknisvottorð kæranda, dags. 27. maí 2009. Kemur fram í bréfinu að Vinnumálastofnun hafi áður farið fram á að starfshæfnisvottorði yrði skilað og hafi kærandi fyrst nú orðið við því.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 12. maí 2009, gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 26. maí 2009. Eins og áður er getið barst læknisvottorð vegna kæranda, dags. 27. maí 2009, með bréfi Vinnumálastofnunar til nefndarinnar, dags. 28. maí 2009.

 

2.

Niðurstaða

Í 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um það þegar starfi eða atvinnuviðtali er hafnað. Í 1. mgr. lagagreinarinnar segir að sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.

Í 4. mgr. sömu lagagreinar kemur eftirfarandi fram:

Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði vísvitandi leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.

Í athugasemdum við tilvitnaða 4. mgr. 57. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að gert sé ráð fyrir því að heimilt sé að taka tillit til þess þegar hinn tryggði geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni. Gera megi ráð fyrir að sjaldan reyni á þessa undanþágu þar sem ekki gert ráð fyrir að hinum tryggða verði boðin störf sem hann er ekki fær um að sinna enda hafi hann tekið það fram þegar í upphafi atvinnuleitar.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að sá sem veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn eða lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar svo að unnt sé að aðstoða hann við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama eigi við þegar hinn tryggði hefur vísvitandi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem hafi orðið á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti á tímabili skv. 29. gr. laganna. Í athugasemdum við 59. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysis­tryggingar kemur fram að ákvæði þetta sé nýmæli, en mikilvægt skilyrði þess að unnt sé að aðstoða hinn tryggða við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum sé að nauðsynlegar upplýsingar um hann liggi fyrir. Nokkuð sé um það að atvinnuleitendur komi með læknisvottorð um skerta starfshæfni þegar þeim séu boðin störf. Það geti hins vegar reynst þýðingarmikið að upplýsingar liggi fyrir þegar í upphafi um að þeir geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna heilsufarsástæðna. Skorti nauðsynlegar upplýsingar um vinnufærni umsækjanda geti það því haft neikvæð áhrif á árangur þeirra úrræða sem viðkomandi standi til boða enda hafi þarfamatið verið byggt á ófullnægjandi upplýsingum. Þá sé ekki átt við upplýsingar um atvik eða aðstæður sem ekki voru komin fram þegar umsækjandi sótti fyrst um atvinnuleysisbætur en gert sé ráð fyrir að hinn tryggði gefi nauðsynlegar upplýsingar um leið og breytingar verða.

Það er ljóst að gera verður ríkar kröfur til atvinnuleitenda um að veita viðeigandi upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur eða um leið og breytingar gefa tilefni til þess og án ástæðulausrar tafar. Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur í september 2008 og henni bauðst atvinna þann 8. desember 2008. Staðhæfingar hennar þess efnis að hún gæti ekki tekið vinnunni vegna heilsufarsvandamála bárust fyrst í kjölfar atvinnutilboðsins. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest.

 

Úr­skurðar­orð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 2. febrúar um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir for­maður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum