Hoppa yfir valmynd
26. mars 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 38/2008

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 26. mars 2009 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 38/2008.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 11. desember 2008, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 3. desember 2008 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 6. nóvember 2008. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hans til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi mótteknu 18. desember 2008. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og hann fái greiddar atvinnuleysisbætur í 40 daga frá og með 6. nóvember 2008. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi starfaði sem stuðningsfulltrúi fatlaðra á sambýlinu X frá 22. febrúar 2007 til 1. nóvember 2008. Hann sagði sjálfur upp störfum 1. ágúst 2008 frá og með 1. nóvember 2008. Fram kemur af hálfu kæranda að hann hafi talið sig nauðbeygðan til þess að segja upp störfum þar sem hann og fyrrverandi unnusta hans höfðu ákveðið að hætta sambúð og hann ekki talið sig hafa ráð á að leigja íbúð á frjálsum leigumarkaði í Y vegna hárrar leigu. Hann hafi því ákveðið að flytja til Z og hafi hann ekki talið sig verða í erfiðleikum með að fá aðra vinnu þar að loknum flutningum. Hann kveður skuldastöðu sína ekki leyfa það að hann leigi íbúð á „okurprís“ í Y. Hann hafi leitað víða að atvinnu síðan hann sagði upp störfum á X og einnig fyrir þann tíma og telji að hann muni ekki verða lengi á bótum. Kærandi vonar að skýringar hans verði til þess að hann fái atvinnuleysisbætur enda myndi annað hafa skelfilegar afleiðingar í för með sér fyrir hann. Fram kemur að kærandi eigi fasteign í Z sem hann leigi út á sanngjörnu verði.

Í athugasemdum Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 18. febrúar 2009, kemur meðal annars fram að deilt sé um hvort ástæða uppsagnar kæranda teljist gild ástæða í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé óumdeilt að kærandi hafi sagt upp starfi sínu hjá vinnuveitanda. Það sé því ljóst að líklegt sé að aðstæður kæranda eigi undir 1. mgr. 54. gr. laganna. Ástæður þær er kærandi nefni í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar og í bréfi sínu til Vinnumálastofnunar snúi fyrst og fremst að því að hann hafi ekki haft efni á að vera á frjálsum leigumarkaði í Y eftir að sambúð hans lauk. Jafnframt séu aðstæður hans almennt erfiðar og hann þarfnist því tekna strax til að framfleyta sjálfum sér. Verði að líta til þess að heppilegra hefði verið fyrir kæranda að reyna að útvega sér annað starf áður en hann sagði starfi sínu lausu.

Fram kemur af hálfu Vinnumálastofnunar að ekki verði talið að þær ástæður sem kærandi leggi til grundvallar kröfu sinni geti talist gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé litið til þeirra sjónarmiða sem ákvæðið byggi á. Samkvæmt því eiga launþegar ekki að geta valið milli þess að þiggja atvinnuleysisbætur eða gegna launuðu starfi. Vinnumálastofnun telur ljóst að ástæður þær er kærandi nefnir í kæru sinni og öðrum gögnum fyrir uppsögn á starfi sínu teljist ekki gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 23. febrúar 2009, sent afrit af athugasemdum Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 9. mars 2009. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi sagði sjálfur starfi sínu lausu á sambýlinu á X vegna flutninga til Z án þess að hafa að annarri vinnu að hverfa. Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist ekki gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga.

 

Úr­skurðar­orð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 3. desember 2008 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 daga er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir for­maður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum