Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 30/2015

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

      

Miðvikudaginn 1. júlí 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 30/2015:

 

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 25. maí 2015, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar á umsókn hennar um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann fyrir tímabilið 1. janúar 2015 til 31. mars 2015.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 13. apríl 2015, sótti kærandi um greiðslu húsaleigubóta hjá Reykjavíkurborg aftur í tímann fyrir tímabilið 1. janúar 2015 til 31. mars 2015. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 13. apríl 2015, með þeim rökum að umsóknin hafi ekki borist á tilsettum tíma, sbr. 10. gr. laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 22. apríl 2015 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um greiðslu húsaleigubóta fyrir tímabilið janúar, febrúar og mars 2015. Samkvæmt 10. gr. laga um húsaleigubætur skal umsókn hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Vakin er athygli á að um húsaleigubætur gilda lög nr. 138/1997. Velferðarráð hefur ekki heimild til að víkja frá settum lögum.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 22. apríl 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 25. maí 2015. Með bréfi, dags. 27. maí 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun ásamt öðrum gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 2. júní 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 8. júní 2015, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi gleymt að endurnýja umsókn um húsaleigubætur í desember 2014 og hafi ekki áttað sig á því fyrr en í apríl 2015. Kærandi tekur fram að hún hafi ekki vitað að hún þyrfti að endurnýja húsaleigubætur á meðan hún væri með leigusamning í gildi. Hún hafi fengið áminningu um endurnýjun í tölvupósti en á netfang sem hún noti mjög lítið og því ekki tekið eftir þeim pósti. Kærandi greinir frá því að hún hafi verið í erfiðum próflestri á þessum tíma og lítið getað sinnt öðru. Þar að auki sé hún einstæð móðir með tvö börn og því að mörgu að huga. Kærandi bendir á að þetta sé mikið fjárhagstjón fyrir sig og húsaleigubætur fyrir það tímabil sem um ræðir myndu hjálpa henni einstaklega mikið og létta af áhyggjum hennar.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er vísað til 2. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, þar sem fram komi að sækja þurfi um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og umsóknin gildi til ársloka. Þá komi fram í 3. mgr. 10. gr. laganna að umsókn um húsaleigubætur skuli hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Berist umsókn seinna verði húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar. Framangreindar reglur séu einnig ítrekaðar í 4. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003.

Í desember 2014 hafi Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða sent kæranda tölvubréf þar sem hún hafi verið upplýst um að til þess að hægt væri að afgreiða húsaleigubætur áfram til kæranda á næsta ári þyrfti hún að endurnýja umsóknina fyrir 16. janúar 2015 og senda til þjónustumiðstöðvarinnar. Umsókn kæranda um húsaleigubætur hafi ekki borist þjónustumiðstöð fyrr en 13. apríl 2015. Velferðarráð hafi talið umsókn kæranda of seint fram komna en eins og fram komi í 2. og 3. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur þurfi að sækja um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og skal umsókn hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Það sé mat Reykjavíkurborgar að orðalag 10. gr. laga um húsaleigubætur feli í sér að ekki sé heimilt að greiða húsaleigubætur aftur í tímann ef umsókn berist seinna en ákvæðið kveði á um. Ljóst sé að umsókn kæranda um húsaleigubætur fyrir árið 2015 hafi ekki borist fyrr en 13. apríl 2015 og því hafi ekki verið unnt að samþykkja umsókn kæranda um húsaleigubætur fyrir 1. janúar 2015 til 31. mars 2015. Í lögum um húsaleigubætur sé ekki að finna heimildir til undanþágu í tilvikum sem þessum og því sé ljóst að velferðarráð hafi ekki heimild til að víkja frá framangreindum ákvæðum laganna.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 16. gr. laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborghafi borið að samþykkja umsókn kæranda um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann fyrir tímabilið 1. janúar 2015 til 31. mars 2015.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur segir að sækja skuli um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildi umsóknin til ársloka. Í 3. mgr. sömu lagagreinar segir að umsókn um húsaleigubætur skuli hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Berist umsókn seinna verði húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar. Með vísan til ákvæða tilvitnaðra lagagreina er ekki lagaheimild fyrir því að víkja frá skýrum ákvæðum laganna um að sækja skuli um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár fyrir sig og að umsókn um húsaleigubætur skuli hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Það er því mat úrskurðarnefndarinnar að kærandi hafi ekki átt rétt á greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann. Hin kærða ákvörðun verður því staðfest.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 13. apríl 2015, um synjun á umsókn A um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann fyrir tímabilið 1. janúar 2015 til 31. mars 2015 er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum