Hoppa yfir valmynd
6. maí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 9/2015

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                 

Miðvikudaginn 6. maí 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 9/2015:


Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A hefur með kæru, dags. 13. febrúar 2015, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 21. janúar 2015, á umsókn hennar um námsstyrk fyrir tímabilið 1. febrúar 2015 til 31. maí 2015.


I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 17. desember 2014, sótti kærandi um námsstyrk hjá Reykjavíkurborg fyrir tímabilið 1. febrúar 2015 til 31. maí 2015. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 15. janúar 2015, á þeirri forsendu að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 8. og 15. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 21. janúar 2015 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um námsaðstoð til framfærslu tímabilið 1. febrúar 2015 til 31. maí 2015 skv. 8. sbr. 15. gr. reglna um fjárhagsaðstoð.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 21. janúar 2015. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 13. febrúar 2015. Með bréfi, dags. 16. febrúar 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 5. mars 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 9. mars 2015, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.


II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að hún sé einstæð móðir og langi til að mennta sig þar sem hún geti ekki unnið á lágmarkslaunum allt sitt líf. Kærandi tekur fram að hún þjáist meðal annars af kvíða og félagsfælni vegna erfiðra uppeldisaðstæðna. Hún hafi skráð sig í nám en hún vilji ekki hætta í náminu og fara á fjárhagsaðstoð. Það reynist henni mjög erfitt að vera einstæð móðir því hún skuldi mikið og eigi ekki rétt á námslánum.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda og fjölskyldu hennar. Kærandi stundi nám í B sem sé lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna en hún eigi ekki rétt á námslánum. Í 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, segi að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Í 20. gr. laganna segi síðan að um skyldur sveitarfélags til að veita fjárhagsaðstoð gildi almenn ákvæði um félagsþjónustu skv. IV. kafla laganna. Í 12. gr. laganna sé að finna ákvæði sem kveði á um að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf.

Á grundvelli framangreindra laga um félagsþjónustu sveitarfélaga hafi Reykjavíkurborg sett sér reglur um fjárhagsaðstoð. Í 1. gr. reglnanna segi að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, sbr. og III. kafla reglnanna. Í 2. gr. reglnanna sé áréttað að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Í 15. gr. sé skýrt kveðið á um að einstaklingar sem stundi nám sem sé lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna njóti ekki réttar til fjárhagsaðstoðar. Aðrir námsmenn eigi ekki rétt til fjárhagsaðstoðar til framfærslu nema fullnægt sé skilyrðum 18. gr. um námsstyrki/lán vegna náms. Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sé ekki að finna ákvæði sem skyldi sveitarfélög til að framfæra einstaklinga sem leggi stund á lánshæft nám.

Ákvæði 18. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg um námsstyrk sé heimildarákvæði og í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sé ekki að finna ákvæði sem skyldi sveitarfélög til að framfæra einstaklinga sem leggi stund á nám. Almennt sé gert ráð fyrir að einstaklingar sem leiti eftir fjárhagsaðstoð séu í atvinnuleit en leggi ekki stund á nám. Í þessu samhengi verði einnig að líta til þess sem fram komi í frumvarpi til laga nr. 40/1991 en þar segi um 1. gr. að opinber félagsþjónusta megi ekki verða til þess að deyfa tilfinninguna fyrir ábyrgð einstaklingsins á sjálfum sér og öðrum. Gera verði þá kröfu að einstaklingar hugi að framfærslu sinni og þeirra sem þeim ber lögum samkvæmt skylda til að framfæra. Fjárhagsaðstoð sé öryggisnet til þrautarvara, þ.e. tímabundið úrræði og neyðarráðstöfun til þess að forða þeim einstaklingum og fjölskyldum frá örbirgð sem ekki eigi neinna annarra kosta völ til þess að eiga í sig og á.

Kærandi hafi valið að hætta á vinnumarkaði og leggja stund á lánshæft nám jafnvel þótt hún hafi vitað að hún ætti ekki rétt á námslánum frá LÍN. Það hafi verið mat velferðarráðs að kærandi sé vinnufær og hafi kost á því að starfa meðfram námi sínu. Samkvæmt 19. gr. laga nr. 40/1991 hvíli sú skylda á kæranda að framfæra sjálfa sig og henni beri að leita leiða til að framfæra sig áður en leitað sé eftir aðstoð frá sveitarfélagi. Í 15. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð sé skýrt kveðið á um að þeir einstaklingar sem stundi nám sem sé lánshæft hjá LÍN njóti ekki réttar til fjárhagsaðstoðar. Fyrir liggi að nám kæranda sé lánshæft hjá LÍN og því verði að líta svo á að það girði fyrir rétt kæranda til fjárhagsaðstoðar frá Reykjavíkurborg.


IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg frá 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um námsstyrk fyrir tímabilið 1. febrúar 2015 til 31. maí 2015.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Umsókn kæranda um námsstyrk var synjað á þeirri forsendu að skilyrði 18. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið uppfyllt. Í 1. mgr. 18. gr. framangreindra reglna kemur fram að heimilt sé að veita námsstyrki, ásamt almennum skólagjöldum, innritunarkostnaði og bókakostnaði, í eftirfarandi tilvikum:

  1. til einstaklinga 18–24 ára, sem ekki hafa lokið grunnskóla eða framhaldsskóla og hafa átt við mikla félagslega erfiðleika að stríða.
  2. til einstæðra foreldra á aldrinum 18–24 ára, sem ekki hafa lokið grunnskóla eða framhaldsskóla og hafa haft atvinnutekjur sem eru lægri en grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, sbr. 1. mgr. 11. gr. reglna þessara, undanfarna tólf mánuði. Skilyrði er að umsækjandi hafi átt í félagslegum erfiðleikum.

  3. til einstaklinga á aldrinum 18–24 ára sem ekki hafa lokið framhaldsskóla og eiga eftir ólokið að hámarki tvær annir. Um sé að ræða einstakling sem ekki hefur tök á að vinna með skóla og fyrir liggur mat á því að ef ekki komi til aðstoðar sé ljóst að viðkomandi flosni upp úr námi.

  4. til einstaklinga sem hafa verið atvinnulausir án bótaréttar eða þegið fjárhagsaðstoð í sex mánuði eða lengur og hafa ekki lokið grunnnámi sem gefur rétt á námsláni.

  5. Heimilt er að veita tekjulágum foreldrum fjárstyrk vegna náms 16 og 17 ára barna. Hér er átt við tekjulága foreldra sem átt hafa í langvarandi félagslegum erfiðleikum.

Þá kemur fram í 2. mgr. 18. gr. reglnanna að leggja þurfi inn umsókn tveimur mánuðum áður en nám hefst nema hvað varðar c-liðinn og í 3. mgr. 18. gr. segir að starfsmaður og námsmaður skuli gera með sér samkomulag um félagslega ráðgjöf þar sem fram komi m.a. hvernig skuli staðið að skilum varðandi skólasókn, námsframvindu og/eða einkunnir. Einkunnum skuli þó ætíð skilað í annarlok.

Í a–c-liðum 18. gr. reglnanna er meðal annars gert að skilyrði að umsækjandi sé á aldrinum 18–24 ára. Kærandi var 25 ára þegar hún sótti um framangreindan styrk og því koma ákvæði a–c-liða 18. gr. reglnanna ekki til skoðunar. Þá á e-liður 18. gr. ekki við um kæranda. Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi hvorki verið atvinnulaus án bótaréttar né notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu í sex mánuði eða lengur þegar umsókn hennar barst Reykjavíkurborg líkt og gert er að skilyrði í d-lið 18. gr. Úrskurðarnefndin telur því að d-liður 18. gr. reglnanna hafi ekki átt við í máli kæranda. Að framangreindu virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að skilyrðum 18. gr. reglnanna hafi ekki verið fullnægt í málinu og kærandi því ekki átt rétt á námsstyrk á tímabilinu 1. febrúar 2015 til 31. maí 2015. Hin kærða ákvörðun verður því staðfest.

Vegna tilvísunar Reykjavíkurborgar til 15. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg telur úrskurðarnefndin rétt að benda á að margsinnis hefur verið úrskurðað að ákvæði 15. gr. reglnanna leiði til þess að ekki fari fram eiginlegt mat á aðstæðum umsækjenda. Þrátt fyrir að kærandi stundi lánshæft nám liggur fyrir að hún fær ekki notið þeirra réttinda sem í því felst.  Þar sem löggjafinn hefur eftirlátið stjórnvöldum mat til þess að geta tekið ákvörðun sem best hentar hag hvers aðila, með tilliti til allra aðstæðna, er stjórnvöldum óheimilt að afnema matið með því að setja til dæmis verklagsreglu sem tekur til allra mála, sambærilegra sem ósambærilegra. Úrskurðarnefndin beinir þeim tilmælum til Reykjavíkurborgar að framangreint verði framvegis haft í huga við afgreiðslu sambærilegra mála.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 21. janúar 2015, um synjun á umsókn A um námsstyrk fyrir tímabilið 1. febrúar 2015 til 31. maí 2015 er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum