Hoppa yfir valmynd
10. desember 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 62/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                  

Á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála þann 10. desember 2014 var tekið fyrir mál nr. 62/2014:

 

Kæra A

á ákvörðun

Fjarðabyggðar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 28. október 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun félagsmálanefndar Fjarðabyggðar, dags. 8. október 2014, á umsókn hans um námsstyrk á haustönn 2014.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 24. júlí 2014, sótti kærandi um námsstyrk hjá Fjarðabyggð vegna haustannar 2014. Umsókn kæranda var synjað með bréfi félagsþjónustusviðs, dags. 3. september 2014, með þeim rökum að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 21. gr. reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð. Kærandi áfrýjaði synjuninni til félagsmálanefndar Fjarðabyggðar sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 6. október 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Nefndin staðfestir ákvörðun meðferðarfundar og hafnar umsókn um skólastyrk þar sem umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði eins og þau eru sett fram í 21. gr. í reglum Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð.“

Niðurstaða félagsmálanefndar var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 8. október 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 28. október 2014. Með bréfi, dags. 30. október 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir öllum gögnum málsins, þar á meðal umsókn kæranda, ákvörðun sveitarfélagsins og gögnum um fjárhag kæranda. Enn fremur var óskað eftir greinargerð Fjarðabyggðar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Fjarðabyggðar barst með bréfi, dags. 13. nóvember 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 19. nóvember 2014, var bréf Fjarðabyggðar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi óskar endurskoðunar á synjun umsóknar hans um námsstyrk. Kærandi kveðst hafa verið í vinnu sumarið 2014 og þénað ágætlega en það dugi ekki fyrir skóla allan veturinn. Hann stundi nám í heimavistarskóla þar sem námið sé ekki í boði í hans heimabyggð.

 

III. Sjónarmið Fjarðabyggðar

Í greinargerð Fjarðabyggðar er vísað til 21. gr. reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð þar sem fram komi að heimilt sé að veita styrk til einstaklinga/einstæðra foreldra sem hafi átt í miklum félagslegum og fjárhagslegum erfiðleikum og ekki lokið grunnskóla eða framhaldsskóla. Það hafi verið mat starfsmanna fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 21. gr. reglnanna þar sem hann hafi ekki átt sögu um félagslega eða fjárhagslega erfiðleika. Þá hafi hvorugt foreldri kæranda átt sögu um fjárhagslega erfiðleika innan fjárhagsaðstoðarmála Fjarðabyggðar. Kærandi hafi verið í launaðri vinnu sumarið 2014 og þénað vel samkvæmt launaseðlum.

Kærandi hafi ekki lagt fram nein rök sem varða félagslega eða fjárhagslega erfiðleika og hafi aldrei áður komið við sögu innan málefna fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Kærandi hafi einnig haft tekjur yfir sumarið sem hefðu átt að duga fyrir greiðslu kostnaðar sem hafi legið fyrir við byrjun náms kæranda.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð frá 20. desember 2013. Í máli þessu er ágreiningur um hvort Fjarðabyggð hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um námsstyrk á haustönn 2014.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfsstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Umsókn kæranda um námsstyrk var synjað á þeim grundvelli að skilyrði 21. gr. reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð hafi ekki verið uppfyllt. Í 21. gr. reglnanna kemur m.a. fram að heimilt sé að veita námsstyrki til einstaklinga/einstæðra foreldra sem hafi átt í miklum félagslegum og fjárhagslegum erfiðleikum og hafi ekki lokið grunnskóla eða framhaldsskóla. Aðstoðin skuli vera liður í umfangsmeiri vinnu starfsmanna félagsþjónustu sem miði m.a. að því að gera viðkomandi kleift að lifa efnahagslega sjálfstæðu lífi.

Í greinargerð Fjarðabyggðar kemur fram að kærandi hafi aldrei komið við sögu hjá fjölskyldusviði sveitarfélagsins og að hann hafi ekki lagt fram nein rök sem varða félagslega eða fjárhagslega erfiðleika. Kærandi hafi því ekki uppfyllt skilyrði 21. gr. reglnanna um mikla félagslega og fjárhagslega erfiðleika. Úrskurðarnefndin telur að ekkert hafi komið fram í málinu sem gefi tilefni til að gera athugasemdir við mat sveitarfélagsins á félagslegum og fjárhagslegum aðstæðum kæranda. Að mati úrskurðarnefndarinnar uppfyllir kærandi ekki skilyrði 21. gr. reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat félagsmálanefndar Fjarðabyggðar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

 

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Fjarðabyggðar, dags. 8. október 2014, um synjun á umsókn A um námsstyrk á haustönn 2014 er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum