Hoppa yfir valmynd
8. október 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 43/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík

                                                            

Miðvikudaginn 8. október 2014 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 43/2014:

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

B hefur f.h. A með bréfi, dags. 9. júlí 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 9. apríl 2014, á umsókn hennar um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu að fjárhæð 300.000 krónur hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 27. febrúar 2014. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 20. mars 2014, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 9. apríl 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um styrk að upphæð kr. 300.000.- þar sem eigi verður talið að aðstæður umsækjanda falli að skilyrðum þeim sem sett eru í 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð varðandi styrk til fyrirframgreiðslu/tryggingu húsaleigu.

Velferðarráð samþykkti að veita umsækjanda lán að upphæð kr. 240.000.- til fyrirframgreiðslu húsaleigu skv. 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð. Skilyrði er að fyrir liggi þinglýstur húsaleigusamningur.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 9. apríl 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 9. júlí 2014. Með bréfi, dags. 7. ágúst 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar og gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 21. ágúst 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 22. ágúst 2014, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

II. Málsástæður kæranda

Kærandi hefur ekki komið neinum sjónarmiðum á framfæri við meðferð máls þessa.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er vísað til þess að það hafi verið mat velferðarráðs að skilyrði 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið uppfyllt þar sem kærandi hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu mánuðinn sem sótt hafi verið um og mánuðinn þar á undan. Kærandi sé 75% öryrki og tekjur hennar séu hærri en fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Velferðarráð hafi samþykkt að veita kæranda lán að fjárhæð 240.000 krónur með tilliti til félagslegra aðstæðna þrátt fyrir að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði 23. gr. reglnanna.  

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sem tóku gildi 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu að fjárhæð 300.000 krónur.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Kærandi sótti um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu að fjárhæð 300.000 krónur og var umsókn hennar synjað á þeirri forsendu að hún hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu mánuðinn sem sótt hafi verið um og mánuðinn þar á undan.

Í 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er fjallað um styrk eða lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu og til tryggingar húsaleigu. Samkvæmt ákvæðinu er Reykjavíkurborg heimilt að veita þeim sem fengið hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglunum í mánuðinum sem sótt er um og í mánuðinum á undan lán eða styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu. Þinglýstur leigusamningur skal liggja fyrir eða önnur staðfesting um að samningur eigi við rök að styðjast og skal leigufjárhæð vera í samræmi við leigu á almennum markaði.

Samkvæmt gögnum málsins naut kærandi ekki fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu í mánuðinum sem hún sótti um styrkinn og í mánuðinum á undan líkt og gert er að skilyrði í 23. gr. framangreindra reglna. Í ljósi þess að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 23. gr. verður að telja að Reykjavíkurborg hafi þegar af þeirri ástæðu verið rétt að synja umsókn kæranda styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 9. apríl 2014, um synjun á umsókn A um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu er staðfest.

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum