Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 25/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík

                                                            

Miðvikudaginn 16. júlí 2014 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 25/2014:

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A hefur með bréfi, mótteknu 16. apríl 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 9. apríl 2014, á beiðni hennar um fjárhagsaðstoð.

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 18. mars 2014. Kærandi óskaði eftir styrk vegna sérstakra erfiðleika að fjárhæð 100.000 krónur til að lifa af út mánuðinn. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 2. apríl 2014, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 9. apríl 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um styrk að upphæð kr. 100.000.- þar sem eigi verður talið að aðstæður umsækjanda falli að skilyrðum þeim sem sett eru í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð varðandi aðstoð vegna sérstakra erfiðleika.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 9. apríl 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála með bréfi, mótteknu 16. apríl 2014. Með bréfi, dags. 30. apríl 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar og gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 13. maí 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 14. maí 2014, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

II. Málsástæður kæranda

Í kæru greinir kærandi frá aðstæðum sínum og veikindum. Hún hafi verið á endurhæfingarlífeyri en sé nú að bíða eftir örorkubótum vegna óvinnufærni. Hún hafi rétt svo náð endum saman á endurhæfingarlífeyri en eftir að hún hafi farið yfir til félagsþjónustunnar eigi hún rétt svo nóg fyrir húsaleigu og lyfjum í eina viku. Kærandi eigi ekki nóg fyrir mat, rafmagni eða hita og lokað verði fyrir rafmagnið ef hún nái ekki að greiða fyrir það. Kærandi greinir frá því að hún sé með lyfin sín í lyfjaskömmtun sem hún fái vikulega en það sé dagleg barátta fyrir hana að halda lífi því ef hún verði alveg lyfjalaus þá sé hún komin í sjálfsvígshættu. Streitan yfir því að eiga ekki fyrir lyfjum eða mat sé orðin það mikil að hún sé mjög langt niðri og sjái ekki neitt bjart framundan. Kærandi kveðst vera að bíða eftir íbúð frá Félagsbústöðum en það gangi mjög hægt fyrir sig.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í athugasemdum Reykjavíkurborgar vegna kærunnar kemur fram að meðferð umsóknar kæranda um fjárhagsaðstoð hafi farið fram samkvæmt reglum um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg með áorðnum breytingum sem tóku gildi þann 1. janúar 2011 og samþykktar voru í velferðarráði þann 17. nóvember 2010 og í borgarráði 25. nóvember 2010. Kæranda hafi verið synjað um styrk vegna sérstakra erfiðleika þar sem ekki hafi verið uppfyllt öll skilyrði 24. gr. reglnanna. Kærandi uppfylli ekki skilyrði a-liðar þar sem hún hafi ekki verið með fjárhagsaðstoð sér til framfærslu undanfarna sex mánuði eða lengur en kærandi hafi fengið greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Kærandi kveðst ekki njóta aðgangs að lánafyrirgreiðslu hjá banka, sparisjóði eða öðrum lánastofnunum en hafi ekki framvísað staðfestingu þess efnis, sbr. b-lið 24. gr. reglnanna. Hvorki liggi fyrir yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda né tillögur að úrbótum eins og kveðið sé á um í c-lið 24. gr. Þá liggi hvorki fyrir á hvern hátt styrkurinn muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma sé litið, sbr. d-lið 24. gr., né samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf, sbr. e-lið 24. gr. Með hliðsjón af framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að skilyrði 24. gr. væru ekki uppfyllt og því staðfest synjun þjónustumiðstöðvar um styrk að fjárhæð 100.000 krónur. Því verði að telja ljóst að hin kærða ákvörðun hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum né ákvæðum laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sem tóku gildi 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda, dags. 18. mars 2014, um styrk að fjárhæð 100.000 krónur vegna sérstakra erfiðleika.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfsstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 12. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, kemur fram sú meginregla að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð, og tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Skal aðstoð og þjónusta jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Reykjavíkurborg hefur sett sér sérstakar reglur um fjárhagsaðstoð. Kærandi sótti um styrk að fjárhæð 100.000 krónur vegna sérstakra erfiðleika til að framfæra sig. Synjun Reykjavíkurborgar byggist á því að skilyrðum 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið fullnægt.

Í 1. mgr. 24. gr. framangreindra reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg kemur fram við hvaða skilyrði veita megi lán eða styrk vegna sérstakra erfiðleika. Lán eða styrkur samkvæmt ákvæðinu kemur einungis til álita að fullnægðum öllum eftirfarandi skilyrðum:

a)      umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur,

b)      staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana,

c)      fyrir liggi yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á,

d)      fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið,

e)      fyrir liggi samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við.

Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hefur kærandi ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu undanfarna sex mánuði eða lengur, sbr. a-lið 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Í ljósi þess að kærandi uppfyllir ekki skilyrði a-liðar 24. gr. verður að telja að Reykjavíkurborg hafi þegar af þeirri ástæðu verið rétt að synja umsókn kæranda um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 9. apríl 2014, um synjun á umsókn A um fjárhagsaðstoð vegna sérstakra erfiðleika er staðfest.

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum