Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 30/2013.

 

 

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík

           

 

Miðvikudaginn 29. janúar 2014 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 30/2013:

 

 

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dags. 10. júlí 2013, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 10. apríl 2013, á beiðni hans um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann fyrir tímabilið 1.–28. febrúar 2013.

 

 

I. Málavextir og málsmeðferð

 

Kærandi sótti um húsaleigubætur frá 1. mars 2013 hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 13. mars 2013. Umsókn kæranda var samþykkt. Kærandi sótti einnig um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann fyrir 1.–28. febrúar 2013. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 14. mars 2013, með þeim rökum að umsókn kæranda hafi borist þann 13. mars 2013 og því væri ekki réttur til húsaleigubóta fyrir febrúarmánuð, sbr. 10. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs með bréfi, dags. 25. mars 2013. Velferðarráð tók málið fyrir á fundi sínum þann 10. apríl 2013 og samþykkti svohljóðandi bókun:

 

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann fyrir tímabilið 1. febrúar 2013 til 28. febrúar 2013. Samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur skal umsókn hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Berist umsókn seinna verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar.

Vakin er athygli á að um húsaleigubætur gilda lög nr. 138/1997. Velferðarráð hefur ekki heimild til að víkja frá settum lögum.

 

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 10. apríl 2013. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála með bréfi, dags. 10. júlí 2013. Með bréfi, dags. 11. júlí 2013, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir synjun um húsaleigubætur. Enn fremur var óskað eftir gögnum sem lágu fyrir og gæfu upplýsingar um fjárhag kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 3. september 2013, var kæranda tilkynnt um tafir á afgreiðslu málsins sem orsökuðust af miklum málafjölda hjá úrskurðarnefndinni en að vonir stæðu til þess að ljúka málinu sem fyrst. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 13. september 2013. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 17. september 2013, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

 

II. Málsástæður kæranda

 

Kærandi hefur ekki komið neinum sjónarmiðum á framfæri í málinu.

 

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

 

Í athugasemdum Reykjavíkurborgar vegna kærunnar kemur fram að í 3. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, með síðari breytingum, segi að umsókn um húsaleigubætur skuli hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Berist umsókn seinna verði húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar. Framangreindar reglur séu einnig ítrekaðar í 4. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003. Umsókn kæranda um húsaleigubætur fyrir tímabilið 1.–28. febrúar 2013 hafi ekki borist þjónustumiðstöð fyrr en 13. mars 2013. Velferðarráð hafi talið umsókn kæranda of seint fram komna en eins og fram komi í 3. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur þurfi að sækja um húsaleigubætur eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Það sé mat Reykjavíkurborgar að orðalag 3. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur feli það í sér að ekki sé heimilt að greiða húsaleigubætur aftur í tímann ef umsókn berist seinna en ákvæðið kveði á um. Ljóst sé að umsókn kæranda um húsaleigubætur fyrir 1.–28. febrúar 2013 hafi ekki borist fyrr en 13. mars 2013. Með hliðsjón af framangreindu ákvæði hafi ekki verið unnt að samþykkja umsókn kæranda um húsaleigubætur. Þá beri einnig að geta þess að Reykjavíkurborg hafi ekki heimild til að víkja frá settum lögum.

 

 

IV. Niðurstaða

 

Málskotsheimild kæranda er reist á 16. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda, dags. 13. mars 2013, um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann fyrir 1.–28. febrúar 2013.

 

Í 2. mgr. 10. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, segir að sækja skuli um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildi umsóknin til ársloka. Í 3. mgr. sömu lagagreinar segir að umsókn um húsaleigubætur skuli hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Berist umsókn seinna verði húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar. Með vísan til ákvæða tilvitnaðra lagagreina er ekki lagaheimild fyrir því að víkja frá skýrum ákvæðum laganna um að sækja skuli um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár fyrir sig og að umsókn um húsaleigubætur skuli hafa borist eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Það er því mat úrskurðarnefndarinnar að kærandi hafi ekki átt rétt á greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann. Hin kærða ákvörðun verður því staðfest.

 

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 10. apríl 2013, um synjun á A, um greiðslu húsaleigubóta aftur í tímann fyrir tímabilið 1.–28. febrúar 2013, er staðfest.

 

 

 

 

Bergþóra Ingólfsdóttir,

 

formaður

 

 

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir                Gunnar Eydal

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum