Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 16/2012

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík

                             

Miðvikudaginn 22. ágúst 2012 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 16/2012:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, ódagsettri en móttekinni 18. janúar 2012, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs frá 7. október 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum. Úrskurðarnefndin tók málið fyrir á fundi sínum 25. janúar 2012 og taldi kæruna of seint fram komna og vísaði málinu frá með úrskurði dagsettum þann dag. Kærandi óskaði eftir endurupptöku málsins með bréfi, dags. 16. febrúar 2012. Hann kvaðst hafa fengið bréf Íbúðalánasjóðs tveimur vikum eftir dagsetningu þess og hefði því lagt fram kæru sína innan kærufrests. Úrskurðarnefnd félagsþjónustu ákvað, á fundi sínum þann 22. ágúst 2012, að endurupptaka mál þetta með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Verður málið því tekið til úrskurðar á grundvelli þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 7. október 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 13.450.000 kr. Við það var miðað við endurútreikning lána kæranda og því nam 110% af fasteignamati 14.795.000 kr. Áhvílandi veðlán voru 16.393.049 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi á bankainnstæður að fjárhæð 6.445.601 kr, hlutabréf í C að fjárhæð 200.000 kr., hlutabréf í D að fjárhæð 95.680 kr., fasteign að fjárhæð 17.350.000 kr. og aðra fasteign að fjárhæð 661.327 kr. og bifreið Y að fjárhæð 209.952. Frádráttur samtals vegna annarra eigna kæranda nemur því 24.962.560 kr.

 

II. Málsmeðferð

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála kvað upp frávísunarúrskurð í máli þessu þann 25. janúar 2012. Með bréfi kæranda var þess farið á leit að málið yrði endurupptekið með þeim rökum að kæran hefði borist innan lögboðins tímafrests. Úrskurðarnefndin ákvað að verða við því. Með bréfi, dags. 20. febrúar 2012, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 19. mars 2012. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 21. mars 2012, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 30. mars 2012. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 16. apríl 2012, var kæranda tilkynnt um tafir á afgreiðslu málsins sem orsökuðust af miklum málafjölda hjá úrskurðarnefndinni en að vonir stæðu til þess að ljúka málinu sem fyrst.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi mótmælir því að honum sé synjað um niðurfærslu á láni sínu og vísar því til stuðnings til jafnræðisreglu stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, en í 11. gr. laganna segi að við úrlausn mála skuli stjórnvöld gæta samræmis og jafnræðis og að það sé óheimilt að mismuna aðilum við úrlausn mála. Íbúðalánasjóður sé opinber stofnun og beri því að fara eftir þessum lögum. Sjóðnum sé þar með bannað að mismuna einstaklingum með þeim hætti sem hér sé verið að gera, þ.e. að færa niður lán sumra en synja öðrum um slíka niðurfærslu, þar á meðal kæranda.

 

IV. Sjónarmið kærða

Af hálfu Íbúðalánasjóðs kemur fram að samkvæmt niðurstöðu útreikninga sem liggi fyrir í málinu hafi áramótastaða aðfararhæfra eigna kæranda verið langt umfram hugsanlega niðurfærslu. Synjun Íbúðalánasjóðs hafi byggt á 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 og hafi fasteignamat eignar verið lagt til grundvallar útreikningi.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi mótmælir því að honum sé synjað um niðurfærslu á láni sínu hjá Íbúðalánasjóði og vísar máli sínu til stuðnings til jafnræðisreglu stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 þar sem kærða er veitt heimild til þess að færa niður veðkröfur kemur meðal annars fram að lækkun sé háð því skilyrði að lántaki eða maki hans eigi ekki aðrar aðfararhæfar eignir með veðrými sem svari að hluta eða öllu leyti til fyrirhugaðrar niðurfærslu veðkröfur. Sama regla kemur fram í lið 2.2 í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011.

Reynir því á hvort eignir kæranda teljist til aðfararhæfra eigna í skilningi laga nr. 29/2011. Með aðfararhæfum eignum er átt við allar eignir nema þær séu sérstaklega undanþegnar fjárnámi. Aðfararhæfar eignir eru til dæmis fasteignir, bifreiðar og bankainnstæður. Í málinu liggur fyrir að auk fasteignar sinnar að B á kærandi bankainnstæðu, hlutabréf, fasteignir og bifreið, samtals að verðmæti 24.962.560 kr.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum sem settar hafa verið með lögum nr. 29/2011, og er þar ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að ef veðrými er á aðfararhæfum eignum lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 og lið 2.2. í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um niðurfærslu lána A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum