Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 14/2012

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík

                             

Miðvikudaginn 22. ágúst 2012 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 14/2012:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

Með kæru dags. 9. janúar 2012 hefur B hdl. fyrir hönd A,  hér eftir nefnd kærandi, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs frá 3. nóvember 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni C, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 3. nóvember 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að C 16.350.000 kr. Við það var miðað við endurútreikning lána kæranda og því nam 110% af fasteignamati 17.985.000 kr. Áhvílandi veðlán voru 20.009.309 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að frá væntanlegri niðurfærslu væri dregið andvirði eigna sem sagðar voru tvær bifreiðar, M sem metin var á 1.202.850 kr. en á henni hvíldi lán að fjárhæð 494.061 kr. og er veðrými á bifreiðinni því 708.789 kr., bifreiðarinnar O sem metin var á 5.040.000 kr. en á henni hvíldi lán að fjárhæð 3.643.790 kr. og var veðrými á bifreiðinni því 1.396.210 kr. Þá var einnig dregið frá andvirði þungs bifhjóls að fjárhæð 2.150.000 kr., hlutabréfaeign að fjárhæð 500.000 kr. og bankainnstæður kæranda, alls 8.588.560 kr. Veðrými sem kemur til frádráttar vegna annarra eigna nam því samtals 13.343.559 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 16. janúar 2012, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 1. febrúar 2012. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 6. febrúar 2012, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 16. apríl 2012, var kæranda tilkynnt um tafir á afgreiðslu málsins sem orsökuðust af miklum málafjölda hjá úrskurðarnefndinni en að vonir stæðu til þess að ljúka málinu sem fyrst.

 

III. Sjónarmið kæranda

Í rökstuðningi með kæru lögmanns kæranda til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála segir að í bréfi Íbúðalánasjóðs, dags. 3. nóvember 2011, segi að skilyrði fyrir afgreiðslu erindis um leiðréttingu lána séu ekki uppfyllt þar sem veðrými hafi verið á öðrum aðfararhæfum eignum en niðurfærsla veðskulda lækki sem því nemi. Hér sé í reynd átt við bifreið og fasteign sem sé skráð á maka umbjóðanda lögmannsins. Ekki verði séð að hægt sé að horfa til eigna maka umbjóðandans þegar fjárhagur þeirra sé aðskilinn sbr. kaupmála, dags. 29. júlí 2008. Var þess því krafist að hin kærða ákvörðun Íbúðalánasjóðs yrði felld úr gildi.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður kveðst hafa farið fram á verðmat fasteignar kæranda í samræmi við 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 og þar sem verðmatið hafi verið lægra en fasteignamat hafi verið stuðst við fasteignamatið. Samkvæmt niðurstöðu útreikninga, sem liggi fyrir í málinu, hafi veðsetning umfram 110% verið 2.024.309 kr., en bankainnstæða kæranda miðað við áramótastöðu 2010/2011 hafi verið 8.588.560 kr. Þegar af þeirri ástæðu hafi bankainnstæðan ein sér dugað sem aðfararhæf eign til að fella út niðurfærslu veðkröfu.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi óskar þess að mál hennar verði endurskoðað þar sem ekki sé unnt að líta á fasteign og bifreið maka hennar sem aðfararhæfar eignir þar sem fjárhagur þeirra sé aðskilinn, sbr. kaupmála. Í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 þar sem kærða er veitt heimild til þess að færa niður veðkröfur kemur meðal annars fram að lækkun sé háð því skilyrði að lántaki eða maki hans eigi ekki aðrar aðfararhæfar eignir með veðrými sem svari að hluta eða öllu leyti til fyrirhugaðrar niðurfærslu veðkröfu. Sama regla kemur fram í lið 2.2 í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011.

Í málinu reynir því á hvort kærandi hafi átt eignir sem Íbúðalánasjóði hafi verið rétt að líta til við afgreiðslu erindis kæranda, meðal annars hvort innstæða á innlánsreikningi teljist til aðfararhæfra eigna en framangreind innstæða er ekki talin til séreignar maka kæranda samkvæmt kaupmála sem liggur frammi í málinu. Með aðfararhæfum eignum í skilningi laga nr. 29/2011 er átt við allar eignir nema þær séu sérstaklega undanþegnar fjárnámi. Aðfararhæfar eignir eru til dæmis fasteignir, bifreiðir og bankainnstæður. Í málinu liggur fyrir að auk fasteignar sinnar að C, er kærandi eigandi bankainnstæðu að fjárhæð 8.588.560 kr. Framangreind fjárhæð er hærri en sem nemur veðsetningu áhvílandi veðlána umfram 110%.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að ef veðrými er á aðfararhæfum eignum lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 og lið 2.2. í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um niðurfærslu lána A, áhvílandi á íbúðinni að C, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum