Hoppa yfir valmynd
30. ágúst 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 69/2012

Fimmtudaginn 30. ágúst 2012 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 69/2012:

Kæra A

á ákvörðun

Íbúðalánasjóðs

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dags. 12. júlí 2012, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, frá 17. apríl 2012, vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði þá ákvörðun Íbúðalánasjóðs að taka ekki við umsókn hennar frá 1. mars 2012 um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði, áhvílandi á fasteigninni B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 17. júlí 2012, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða Íbúðalánasjóðs barst með bréfi, dags. 30. júlí 2012. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 21. ágúst 2012, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi bendir á að hún hafi margoft sótt um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði þar sem hún hafi misst af umsóknarfrestinum. Hún hafi ekki fengið bréf með upplýsingum um þennan frest þar sem hún hafi flutt til Þýskalands, en hún hafi flutt aftur til Íslands í júní árið 2011. Þar sem hún hafi verið stödd erlendis hafi hún hvorki getað lesið um frestinn í blöðum né séð auglýsingar þar að lútandi. Kærandi telur að fasteignamat fasteignar hennar hafi verið skráð of hátt og það hafi orðið til þess að Íbúðalánasjóður hafi ekki sent henni bréf þar sem hún hafi ekki uppfyllt skilyrði 110% leiðarinnar. Þá tekur kærandi fram að hún og fjölskylda hennar hafi orðið fyrir miklu áfalli í maí 2011, á sama tíma og frestur til að sækja um endurútreikning lána hafi runnið út. Hún telji rétt að nefna þetta þar sem þetta hafi haft áhrif á að umsókn hennar hafi borist eftir að fresturinn var útrunninn. Kærandi óskar eftir að mál hennar verði endurskoðað með framangreint í huga og tekur fram að miklir hagsmunir séu í húfi.

 

IV. Sjónarmið Íbúðalánasjóðs

Íbúðalánasjóður vísar til svarbréfs sjóðsins, dags. 17. apríl 2012, þar sem erindi kæranda er synjað enda hafi Íbúðalánasjóði verið óheimilt að taka við umsóknum um niðurfærslu á veðkröfum eftir 110% leiðinni eftir 30. júní 2011, sbr. 9. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011. Í tölvupósti sem Íbúðalánasjóður sendi kæranda þann 17. apríl 2012 kemur fram að frestur hafi runnið út þann 1. júlí 2011 til að sækja um endurútreikning lána hjá sjóðnum. Eftir þann tíma hafi Íbúðalánasjóði verið óheimilt að taka við umsóknum og því geti kærandi ekki sótt um 110% leiðina.

 

V. Niðurstaða 

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í máli þessu liggur fyrir að Íbúðalánasjóður neitaði að taka við umsókn kæranda um endurútreikning lána hjá sjóðnum samkvæmt 110% leiðinni, eftir að lögbundinn frestur til þess rann út skv. 1. gr. laga nr. 29/2011, um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál, en umsóknarfrestur rann út þann 1. júlí 2011. Kærandi kveðst hafa verið of sein að sækja um þar sem hún hafi ekki verið á landinu þegar átt hafi að sækja um niðurfærslu áhvílandi veðlána hjá Íbúðalánasjóði. Þá hafi hún og fjölskylda hennar orðið fyrir miklu áfalli á sama tíma og umsóknarfresturinn hafi runnið út.

Í 1. gr. laga nr. 29/2011 kemur fram að Íbúðalánasjóði var heimilt að taka við umsóknum á grundvelli ákvæðisins til og með 30. júní 2011, sbr. einnig lið 4.2 í 4. gr. í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um aðlögun fasteignalána í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011. Samkvæmt skýru orðalagi 1. gr. laga nr. 29/2011 er Íbúðalánasjóði því ekki heimilt að taka við umsóknum eftir að frestur til þess rann út þann 1. júlí 2011. Í fyrrgreindum lögum er ekki að finna ákvæði um að Íbúðalánasjóði sé skylt að tilkynna lántakendum um möguleika þeirra til úrræðisins, heldur kemur einungis fram í ákvæðinu að umsóknir skuli berast sjóðnum. Þrátt fyrir það var úrræðið kynnt í fjölmiðlum auk þess sem það var kynnt á heimasíðu Íbúðalánasjóðs.

Það er álit úrskurðarnefndarinnar að Íbúðalánasjóði beri að gæta jafnræðis við afgreiðslur þeirra umsókna sem honum berast á grundvelli laga nr. 29/2011. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum. Þar er ekki að finna undanþágur sem heimilað gætu viðtöku umsókna um 110% leiðina eftir 1. júlí 2011.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum í 1. gr. laga nr. 29/2011 og í lið 4.2 í 4. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um viðtöku á umsókn um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

 

Ása Ólafsdóttir, formaður

Margrét Gunnlaugsdóttir

Gunnar Eydal



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum