Hoppa yfir valmynd
22. júní 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 30/2011

Miðvikudaginn 22. júní 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 30/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dagsettri 20. apríl 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs frá 14. apríl 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði synjun um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 3. maí 2011, er mat á íbúð kæranda að B 14.550.000 kr. Í endurútreikningnum kemur einnig fram að kærandi á bifreið, X að fjárhæð 1.467.000 kr. Fasteign kæranda miðað við uppreiknað fasteignamat í 110% og aðfararhæfar eignir, þ.e. bifreið kæranda, nema því samtals 17.491.247 kr. Íbúðalánaskuldir kæranda nema samtals 17.491.247 kr.

 

II. Sjónarmið kæranda

Af hálfu kæranda kemur fram að þó hann eigi bíl sinn skuldlausan þá finnist honum óeðlilegt að þurfa að selja hann til þess að greiða skuld sína miðað við það að verið sé að fella niður skuldir allt að 20.000.000 kr. Hann kveðst vera á atvinnuleysisbótum og greiða meðlag auk þess að reyna að lifa á launum sínum. Foreldrar hans hafi stutt hann um 60.000 kr. á mánuði til þess að hann geti framfleytt sér. Honum finnist ekki í lagi að ekki sé hægt að taka tilliti til aðstæðna hans að þessu leyti þegar metið er hvort fella eigi niður skuldir hans. Kærandi kveðst að auki telja að ef um væri að ræða bankalán væru bílar ekki teknir inn í við matið.

 

III. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður bendir á að samkvæmt endurútreikningi, dags. 3. maí 2011, sé fasteign miðað við uppreiknað fasteignamat í 110% og aðfararhæfar eignir samtals 17.967.000 kr. en íbúðalánaskuldir samtals 17.491.247 kr.

Eignir séu samkvæmt þessu hærri en skuldirnar og forsendur niðurfærslu því ekki til staðar, sbr. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011 svo og með vísan til 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögum um húsnæðismál. Reglur geri ekki ráð fyrir að sjóðurinn meti í slíkum tilvikum aðstæður kæranda við niðurfærslu á veðkröfum og synjun því að mati sjóðsins í samræmi við gildandi reglur.

 

IV. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi telur að í máli þessu sé á sér brotið. Í lið 2.2 í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011 kemur fram að lántaki skuli upplýsa kröfuhafa um aðrar aðfararhæfar eignir samkvæmt lögum um aðför nr. 90/1989. Reynist veðrými vera til staðar á aðfararhæfum eignum, á niðurfærsla skulda að lækka sem því nemur. Með aðfararhæfum eignum er átt við allar eignir nema þær séu sérstaklega undanþegnar fjárnámi. Aðfararhæfar eignir eru til dæmis fasteignir, bifreiðar og bankainnistæður. Auk fasteignar sinnar að B á kærandi bifreið sem metin er á 1.467.000 kr. eins og rakið hefur verið. Kærandi hefur ekki mótmælt því að verðmæti eigna sé það sem fram kemur í gögnum málsins, heldur því að óréttlátt sé að taka tilliti til annarra eigna við niðurfærslu lána.

Það er álit úrskurðarnefndarinnar að Íbúðalánasjóði beri að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að ef veðrými er á aðfararhæfum eignum lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum 1. gr. laga nr. 29/2011 og 2. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

Vakin skal athygli á því að í bréfi Íbúðalánasjóðs til kæranda, dags. 14. apríl 2011, er tekið fram að kærandi hafi fjögurra vikna frest til þess að skjóta ákvörðuninni til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála. Þessi frestur er nú þrír mánuðir, eftir breytingu sem gerð var með lögum nr. 152/2010, sem tóku gildi þann 1. janúar 2011.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest. 

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum