Hoppa yfir valmynd
14. desember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 159/2011

Miðvikudaginn 14. desember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 159/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dags. 25. október 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, frá 4. ágúst 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði ákvörðun um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni að B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 4. ágúst 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 21.250.000 kr. Verðmat íbúðarinnar var 110% af skráðu fasteignamati, eða 23.375.000 kr. Áhvílandi á íbúðinni voru 22.890.993 kr.

Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi er eigandi 25% hluta í C, metin á 964.750 kr., einnig er kærandi eigandi 25% hluta í D, metin á 1.752.500 kr. Þá kemur einnig fram í endurútreikningi Íbúðalánasjóðs að kærandi er eigandi tjaldvagns, metinn á 700.000 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 26. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 7. nóvember 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 11. nóvember 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir niðurstöðu útreikninga Íbúðalánasjóðs vegna leiðréttingar lána í 110% leiðinni. Í rökstuðningi með kæru til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 25. október 2011, greinir kærandi frá því að hann kæri niðurstöðu Íbúðalánasjóðs þar sem ekki hafi verið tekið tillit til annars láns sem eingöngu hafi verið tekið til þess að fjármagna íbúðarkaupin, en umrætt lán er hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður byggir á því að fram komi í niðurstöðu útreikninga kærða við afgreiðslu umsóknar kæranda, að áhvílandi veðskuldir fasteignar kæranda hafi verið undir 110%, miðað við fasteignamat íbúðarinnar. Aðrar skuldir yrðu ekki færðar niður í þessu samhengi þar sem ekki væri til þess heimild skv. 1. gr. laga nr. 29/2011.

  

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi hefur fært fram þau rök að við endurútreikning lána hans hjá Íbúðalánasjóði eigi einnig að taka tillit til láns hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, sem tekið hafi verið til að fjármagna kaup á íbúð hans að B en umrætt lán er ekki með veði í þeirri íbúð. Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, sbr. lið 1.1 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011, kemur fram að heimild til niðurfærslu taka eingöngu til áhvílandi veðskulda. Er því ljóst að Íbúðalánasjóði var ekki heimilt að líta til annarra lána kæranda við útreikning á veðsetningarhlutfalli af verðmæti fasteignar hans.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum 1. gr. laga nr. 29/2011 og lið 1.1 í 1. gr. í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum