Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 150/2011

Miðvikudaginn 11. janúar 2012 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 150/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, sem er dagsett 11. október 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, frá 27. september 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði ákvörðun um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni að B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B var 17.200.000 kr. Við afgreiðslu umsóknar kæranda byggði Íbúðalánasjóður á 110% af skráðu fasteignamati eignarinnar. Því var fasteign kæranda metin á 18.920.000 kr. í hinni kærðu ákvörðun. Áhvílandi veðlán á íbúðinni voru 22.555.238 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi er eigandi bifreiðarinnar K, metin á 174.960 kr., og bifreiðarinnar N, metin á 284.310 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 13. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 31. október 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 2. nóvember 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir ákvörðun Íbúðalánasjóðs um leiðréttingu lána í 110% leiðinni. Í rökstuðningi með kæru til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 10. október 2011, segir kærandi að hann hafi greitt gjöld af bifreiðinni N í ágústmánuði síðastliðnum alls 284.310 kr., en einnig hafi hann greitt gjöld af bifreiðinni K á sama tíma, alls 174.980 kr. Það er mat kæranda að af þeim sökum beri Íbúðalánasjóði ekki að meta umræddar bifreiðir til verðs sem aðfararhæfar eignir, til frádráttar niðurfærslu áhvílandi íbúðarlána hans hjá sjóðnum.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður vísar til niðurstöðu útreikninga sem liggja fyrir í málinu, en þær bera með sér viðmið skv. 1. gr. laga 29/2011 við fasteignamat uppreiknað og niðurfærsla lækkuð vegna aðfararhæfra eigna samkvæmt áramótastöðu í skattframtali.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í máli þessu er ágreiningur um frádrátt frá niðurfærslu áhvílandi lána kæranda hjá Íbúðalánasjóði, vegna aðfararhæfra eigna. Í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 og í lið 2.2 í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011 kemur fram að lántaki skuli upplýsa kröfuhafa um aðrar aðfararhæfar eignir samkvæmt lögum um aðför, nr. 90/1989. Reynist veðrými vera til staðar á aðfararhæfum eignum, á niðurfærsla skulda að lækka sem því nemur. Með aðfararhæfum eignum er átt við allar eignir nema þær séu sérstaklega undanþegnar fjárnámi. Aðfararhæfar eignir eru til dæmis fasteignir, bifreiðir og bankainnstæður. Auk fasteignar sinnar að B er kærandi eigandi tveggja bifreiða eins og rakið hefur verið. Kærandi hefur fært fram þau rök að þar sem hann hafi þurft að greiða há gjöld vegna umræddra bifreiða í hans eigu, þá eigi ekki að reikna með umræddum bifreiðum sem aðfararhæfum eignum sem eigi að koma til frádráttar niðurfærslu áhvílandi íbúðarlána hans hjá Íbúðalánasjóði. Hann hefur hins vegar ekki gert athugasemdir við verðmæti bifreiðanna.

Íbúðalánasjóði ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að ef veðrými er á aðfararhæfum eignum lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur og breytir engu þar um þó umsækjendur um endurútreikning íbúðarlána þurfi að bera kostnað af umræddum eignum og greiða af þeim lögbundin gjöld.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt lögum nr. 29/2011 og ákvæðum í 2. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á fasteigninni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum