Hoppa yfir valmynd
14. desember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 145/2011

Miðvikudaginn 14. desember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 145/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dags. 6. október 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs um að taka ekki til meðferðar umsókn kæranda um endurútreikning lána hjá sjóðnum, eftir að frestur til þess rann út.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði þá ákvörðun Íbúðalánasjóðs að taka ekki við umsókn hans um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði, áhvílandi á fasteigninni að B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila. Í máli þessu hefur kærandi haldið því fram að hann hafi leitað sér upplýsinga hjá Íbúðalánasjóði í því skyni að sækja um niðurfærslu íbúðarlána hjá sjóðnum eftir að umsóknarfrestur að rann út, en umsóknarfrestur skv. 1. gr. laga nr. 29/2011 til breytinga á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, rann út þann 30. júní 2011. Kærandi hefur einnig byggt á því að hann hafi leitað til Íbúðalánasjóðs í apríl 2011 í sömu erindagjörðum.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 7. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 31. október 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 2. nóvember 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Í rökstuðningi með kæru sinni til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 3. ágúst 2011, segir kærandi að hann hafi keypt hús árið 2008 og fengið húsnæðislán hjá Íbúðalánasjóði. Þá segir kærandi að hann hafi leitað til Íbúðalánasjóðs í aprílmánuði síðastliðnum og fengið þau svör að engin úrræði væru í boði fyrir hann. Kærandi segist hafa leitað aftur til Íbúðalánasjóðs í ágústmánuði síðastliðnum en fengið þau svör að frestur til þess að sækja 110% leiðina væri runninn út. Byggir kærandi á því að starfsmenn Íbúðalánasjóðs hafi ekki veitt honum réttar upplýsingar og haft af honum lögbundinn kærurétt.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að engin umsókn eða gögn finnist hjá sjóðnum frá kæranda varðandi niðurfærslu lána. Kærði vísar til þess að þar sem kærandi keypti, ásamt fleiri aðilum, íbúð í Hafnarfirði á árinu 2008 á 25.000.000 kr. og áhvílandi lán hafi um síðustu áramót verið u.þ.b. 23.500.000 kr., megi gera ráð fyrir að honum hafi verið tjáð munnlega að áhvílandi lán væru trúlega ekki umfram verðmæti fasteignar.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í máli þessu er á því byggt af hálfu kæranda að Íbúðalánasjóður hafi neitað að taka við umsókn kæranda um endurútreikning lána hjá sjóðnum samkvæmt 110% leiðinni, eftir að lögbundinn frestur til þess rann út skv. 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998.

Í 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögum nr. 44/1998 kemur fram að Íbúðalánasjóði er heimilt að taka við umsóknum á grundvelli ákvæðinu til og með 30. júní 2011. Sama kemur fram í lið 4.2 í 4. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um aðlögun fasteignalána í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011. Samkvæmt skýru orðalagi 1. gr. laga nr. 29/2011 er Íbúðalánasjóði því ekki heimilt að taka við umsóknum eftir að frestur til þess rann út, þann 1. júlí 2011.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast, en í fyrrgreindum reglum er ekki að finna undanþágur sem heimilað gætu móttöku umsókna um 110% leiðina eftir 1. júlí 2011. Ekkert er þar að auki að finna um það í gögnum málsins að kæranda hafi verið hafnað að leggja fram umsókn fyrir 1. júlí 2011.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum í 1. gr. laga nr. 29/2011 og 4. gr. 4.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um viðtöku á umsókn um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum