Hoppa yfir valmynd
14. desember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 142/2011

Miðvikudaginn 14. desember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 142/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dags. 3. október 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, frá 2. ágúst 2011 vegna synjunar á umsókn um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði ákvörðun um synjun á endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni að B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 2. ágúst 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 18.500.000 kr. Við afgreiðslu á umsókn kæranda var miðað við 110% af skráðu fasteignamati íbúðarinnar, eða 20.350.000 kr. Áhvílandi veðskuldir á íbúðinni voru 20.761.300 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi hafi verið eigandi bifreiðarinnar IS 332 metin á 1.530.000 kr., en að frádregnu áhvílandi láni var veðrými bifreiðarinnar talið vera 711.812 kr. Einnig hafi kærandi verið eigandi bifreiðarinnar C metin til verðs á 810.000 kr., en að frádregnu áhvílandi láni var veðrými bifreiðar 636.979 kr. Í endurútreikningnum kemur einnig fram að kærandi eigi D flutninga metnir til verðs á 250.000 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 4. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 20. október 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 24. október 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir synjun Íbúðalánasjóðs um leiðréttingu lána í 110% leiðinni. Í rökstuðningi með kæru til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 3. október 2011, segir kærandi að hún óski almennt eftir því að mál hennar verði endurskoðað. Hún óski þess að verðmat fari fram á íbúð hennar auk þess sem hún bendir á að bifreiðin C sé ekki í eigu hennar.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að sjóðurinn hafi lagt til grundvallar eignastöðu kæranda um síðastliðin áramót, en þá hafi kærandi verið eigandi bifreiðarinnar C. Kærði vísar einnig til þess að við afgreiðslu málsins hafi skráð fasteignamat verið lagt til grundvallar þar sem það hafi verið talið gefa rétta mynd af verðmæti fasteignarinnar, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í máli þessu hefur kærandi farið þess á leit að íbúð hennar verði verðmetin sérstaklega í tengslum við umsókn hennar um niðurfærslu lána Íbúðalánasjóðs sem hvíla á fasteign hennar. Við afgreiðslu umsóknar kæranda byggði Íbúðalánasjóður á skráðu fasteignamati íbúðar kæranda, en kærandi telur það ekki gefa rétta mynd af raunvirði hennar og fer fram á íbúð hennar verði verðmetin af fasteignasala.

Í 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 kemur fram að við verðmat fasteigna samkvæmt ákvæðinu skuli miða við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem er hærra. Telji Íbúðalánasjóður skráð fasteignamat fyrir 2011 ekki gefa rétta mynd af verðmæti eignar skuli hann á eigin kostnað afla verðmats löggilts fasteignasala. Sama regla kemur fram í lið 1.3 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011.

Eins og fram hefur komið hefur við mat fasteignar kæranda verið byggt á skráðu fasteignamati eignarinnar svo sem heimilt er samkvæmt framangreindum reglum, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögum nr. 44/1998. Verður í máli þessu ekki hróflað við því mati kærða af hálfu úrskurðarnefndarinnar, enda getur verðmat löggilts fasteignasala samkvæmt ákvæðinu einungis leitt til þess að verðmæti fasteignar verði hækkað við afgreiðslu umsóknar kæranda.

Í máli þessu stendur ágreiningur aðila jafnframt um frádrátt frá niðurfærslu áhvílandi lána kæranda hjá Íbúðalánasjóði, vegna aðfararhæfra eigna kæranda. Í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, sbr. lið 2.2 í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011, kemur fram að lántaki skuli upplýsa kröfuhafa um aðrar aðfararhæfar eignir samkvæmt lögum um aðför, nr. 90/1989. Reynist veðrými vera til staðar á aðfararhæfum eignum á niðurfærsla skulda að lækka sem því nemur. Með aðfararhæfum eignum er átt við allar eignir nema þær séu sérstaklega undanþegnar fjárnámi. Aðfararhæfar eignir eru til dæmis fasteignir, bifreiðar og bankainnistæður. Í máli þessu hefur komið fram að auk fasteignar sinnar að Kirkjuvegi 15 í Reykjanesbæ var kærandi eigandi aðfararhæfra eigna í skilningi ákvæðisins.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að ef veðrými er á aðfararhæfum eignum lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur. Er hvergi að finna heimild til handa Íbúðalánasjóði um að taka tillit til seinna tilkominna atvika eins og því að kærandi hafi síðar selt umrædda bifreið sína með skráningarnúmerinu C. Við afgreiðslu umsóknar kæranda var frádráttur vegna aðfararhæfra eigna 411.300 kr. Í málinu nýtur meðal annars við gagna um að bifreiðin E hafi verið metin með veðrými að fjárhæð 711.812 kr. auk framangreindrar bifreiðar C sem metin var með veðrými að fjárhæð 636.979 kr., auk hlutafjáreignar í D flutningum sem ekki er tekin afstaða til af hálfu úrskurðarnefndarinnar.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum í 1. gr. laga nr. 39/2011 og ákvæða 1.3 í 1. gr og 2. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun á endurútreikningi á lánum A, áhvílandi á fasteigninni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum