Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 129/2011

Miðvikudaginn 16. nóvember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 129/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dags. 13. september 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs frá 23. ágúst 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni B í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 23. ágúst 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 19.500.000 kr. Uppreiknað verðmat íbúðarinnar var 110% af skráðu fasteignamati eða 21.450.000 kr. Áhvílandi á íbúðinni voru 22.062.561 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi er eigandi bifreiðanna X metin á 3.300.000 kr. og Z metin á 2.535.000 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 19. september 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 7. október 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 11. október 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir niðurstöðu útreikninga Íbúðalánasjóðs vegna leiðréttingar lána í 110% leiðinni. Í rökstuðningi með kæru til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 13. september 2011, segir kærandi að hún vilji leggja fram kæru vegna rangrar niðurstöðu Íbúðalánasjóðs vegna umsóknar um niðurfærslu áhvílandi lána á fasteign hennar að B. Kærandi gerir athugasemdir við að til frádráttar á mögulegri niðurfærslu lána hennar komi bifreið sem hún sé ekki lengur eigandi að, en framlögð gögn sýni að eigendaskipti hafi átt sér stað á umræddri bifreið þann 7. febrúar 2011.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að til grundvallar afgreiðslu sjóðsins í málinu hafi verið eignir kæranda um seinustu áramót, en að bifreið kæranda hafi verið seld á árinu 2011 breyti ekki þeim forsendum.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í málinu er ágreiningur um aðfararhæfar eignir í eigu kæranda sem komu til frádráttar niðurfærslu á lánum hennar hjá Íbúðalánasjóði. Kærandi hefur fært fram þau rök að önnur þeirra bifreiða sem tilgreindar eru í hennar eigu í endurútreikningi Íbúðalánasjóðs í máli kæranda, dags. 23. ágúst 2011, hafi verið seld og eigi því ekki að koma til frádráttar niðurfærslu lána hennar.

Í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, sbr. lið 2.2 í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011, kemur fram að lántaki skuli upplýsa kröfuhafa um aðrar aðfararhæfar eignir samkvæmt lögum um aðför, nr. 90/1989. Reynist veðrými vera til staðar á aðfararhæfum eignum á niðurfærsla skulda að lækka sem því nemur. Með aðfararhæfum eignum er átt við allar eignir nema þær séu sérstaklega undanþegnar fjárnámi. Aðfararhæfar eignir eru til dæmis fasteignir, bifreiðar og bankainnstæður. Auk fasteignar sinnar að Þórðarsveigi 17 í Reykjavík átti kærandi tvær bifreiðar samkvæmt skattframtali á þeim tíma er umsókn hennar um niðurfærslu lána var afgreidd hjá Íbúðalánasjóði eins og rakið hefur verið.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs í máli kæranda, dags. 23. ágúst 2011, nam veðsetning umfram 110% alls 612.561 krónum. Heildarfrádráttur vegna aðfararhæfra eigna kæranda, tveggja bifreiða í hennar eigu nam 5.835.300 kr., en umræddar bifreiðar voru metnar á 3.300.000 kr. (X) og 2.535.300 kr. (Z) eins og rakið hefur verið. Kærandi hefur lagt fram gögn sem sýna að bifreiðin Z er ekki lengur í hennar eigu. Ber þó til þess að líta að bifreið sú sem er enn í eigu kæranda er metin á 3.300.000 kr. og er því ljóst að aðfararhæfar eignir kæranda, jafnvel þó tekið sé tillit til athugasemda kæranda um eigendaskipti umræddrar bifreiðar, eru enn hærri en sem nemur veðsetningu umfram 110% og mögulegri niðurfærslu lána hennar hjá Íbúðalánasjóði. Er því ljóst að sala og eigendaskipti umræddrar bifreiðar breyta engu um niðurstöðu máls þessa.

Það er álit úrskurðarnefndarinnar að Íbúðalánasjóði beri að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að ef veðrými er á aðfararhæfum eignum lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum í og 2. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.


 Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum