Hoppa yfir valmynd
19. október 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 110/2011

Miðvikudaginn 19. október 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 110/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dagsettri 17. ágúst 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs á að taka við umsókn hans um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði þá ákvörðun Íbúðalánasjóðs að taka ekki við umsókn hans um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði, áhvílandi á fasteigninni B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dagsettu 18. ágúst 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dagsettu 2. september 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dagsettu 7. september 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Úrskurðarnefndinni bárust ekki frekari athugasemdir frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kveðst hafa verið of seinn að sækja um, hann hafi ekki verið staddur á Íslandi þegar átt hafi að sækja um. Kærandi kveðst vera með hús til sölu og það sé búið að vera til sölu í þrjú ár. Hann sé með fjögur lán frá Gildi og Íbúðalánasjóði.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að skv. 1. gr. laga nr. 29/2011 hafi Íbúðalánasjóður ekki talið sér vera heimilt að taka við umsóknum eftir 30. júní 2011.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í máli þessu liggur fyrir að Íbúðalánasjóður neitaði að taka við umsókn kæranda um endurútreikning lána hjá sjóðnum samkvæmt 110% leiðinni, eftir að lögbundinn frestur til þess rann út skv. 1. gr. laga nr. 29/2011, um breytingu á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál. Kærandi kveðst hafa verið of seinn að sækja um þar sem hann hafi ekki verið á landinu þegar átt hafi að sækja um.

Í 1. gr. laga nr. 29/2011, um breytingu á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál, kemur fram að Íbúðalánasjóði var heimilt að taka við umsóknum á grundvelli ákvæðisins til og með 30. júní 2011, sbr. einnig lið 4.2 í 4. gr. í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um aðlögun fasteignalána í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011. Samkvæmt skýru orðalagi 1. gr. laga nr. 29/2011 er Íbúðalánasjóði því ekki heimilt að taka við umsóknum eftir að frestur til þess rann út, þann 1. júlí 2011. Í fyrrgreindum lögum er ekki að finna ákvæði um að Íbúðalánasjóði sé skylt að tilkynna lántakendum um möguleika þeirra til úrræðisins, heldur kemur einungis fram í ákvæðinu að umsóknir skuli berast sjóðnum. Þrátt fyrir það var úrræðið kynnt í fjölmiðlum auk þess sem bréf voru send til lántakenda Íbúðalánasjóðs.

Það er álit úrskurðarnefndarinnar að Íbúðalánasjóði beri að gæta jafnræðis við afgreiðslur þeirra umsókna sem honum berast á grundvelli laga nr. 29/2011. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum. Þar er ekki að finna undanþágur sem heimilað gætu viðtöku umsókna um 110% leiðina eftir 1. júlí 2011.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum í 1. gr. laga nr. 29/2011 og 4. gr. 4.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs. 
 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um viðtöku á umsókn um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum