Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 105/2011

Miðvikudaginn 16. nóvember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 105/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dags. 9. ágúst 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, frá 21. júní 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði ákvörðun um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni að B í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 21. júní 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 17.350.000 kr. Verðmat íbúðarinnar var 20.800.000 kr. samkvæmt mati löggilts fasteignasala á fasteignasölunni C, sem fram fór þann 25. maí 2011. Áhvílandi á íbúðinni voru 21.461.120 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi væri eigandi bifreiðarinnar X metin á 43.105 kr. Ekki komi þó til þess að litið yrði til þess þar sem áhvílandi lán töldust nema 103% af verðmæti fasteignar kæranda miðað við verðmæti hennar uppreiknað um 110%.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 10. ágúst 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 29. ágúst 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 1. september 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir niðurstöðu útreikninga Íbúðalánasjóðs vegna leiðréttingar lána í 110% leiðinni. Í rökstuðningi með kæru til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 9. ágúst 2011, segir kærandi að umrædd bifreið X teljist eign fyrirtækisins Z en sé ekki í eigu hennar og að því verði ekki litið til hennar við afgreiðslu erindis hennar. Þá segir kærandi að hún sé öryrki með unglinga á framfæri.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður vísar til útreikninga sem liggja fyrir í málinu þar kemur fram að áhvílandi íbúðalán séu undir verðmati íbúðar uppreiknað í 110%. Forsendur til niðurfærslu séu því ekki til staðar. Samtals nemi áhvílandi lán 103% af verðmæti íbúðarinnar uppreiknaðri miðað við framangreindar forsendur.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í 1. gr. laga nr. 29/2011 til breytinga á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, segir að Íbúðalánasjóði sé heimilt að færa niður veðkröfur sjóðsins á hendur einstaklingum að uppfylltum skilyrðum ákvæðis þessa enda sé uppreiknuð staða veðkrafna 1. janúar 2011 umfram 110% af verðmæti fasteignar í eigu lántaka eða maka hans. Í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011 segir í 1.1 lið 1. gr. að heimilum þar sem áhvílandi veðskuldir eru umfram 110% af verðmæti fasteignar, bjóðist að færa veðskuldir sínar niður að 110% af verðmæti eignar.

Í 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 kemur fram að við verðmat fasteigna samkvæmt ákvæðinu skuli miða við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem er hærra. Telji Íbúðalánasjóður skráð fasteignamat fyrir 2011 ekki gefa rétta mynd af verðmæti eignar skuli hann á eigin kostnað afla verðmats löggilts fasteignasala. Eins og fram hefur komið hefur við mat fasteignar kæranda verið byggt á mati löggilts fasteignasala sem aflað var af hálfu kærða svo sem heimilt er samkvæmt framangreindum reglum, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögum nr. 44/1998. Matið sem dagsett er 25. maí 2011 stafar frá löggiltum fasteignasala og er byggt á skoðun hans á fasteigninni. Var á því byggt við meðferð umsóknar kæranda.

Í máli þessu liggur fyrir að staða áhvílandi lána á íbúð kæranda var undir 110% veðsetningarhlutfalli og því voru ekki lagaskilyrði fyrir því að kærði ekki yrði við umsókn kæranda. Er því ljóst að eignarhald á bifreið þeirri sem skráð var á nafn kæranda kemur ekki til álita þar sem ekki kom til niðurfærslu á lánum hennar hjá kærða.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að ekki er heimild til niðurfærslu íbúðarlána nema áhvílandi veðskuldir séu umfram 110% af verðmæti eignar.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum 1. gr. laga nr. 29/2011 og liðar 1.1 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun á endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum