Hoppa yfir valmynd
14. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 81/2011

Miðvikudaginn 14. september 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 81/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dags. 28. júní 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs frá 30. maí 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði synjun um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 5. júlí 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 17.100.000 kr., en samkvæmt mati löggilts fasteignasala var fasteign kæranda metin á 18.400.000 kr. Staða áhvílandi veðlána kæranda hjá Íbúðalánasjóði var 19.459.601 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi er eigandi bifreiðarinnar X sem metin er á 255.150 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 29. júní 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 6. júlí 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 27. júlí 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekur kærandi fram að eignarhluti hennar í íbúðinni sé nánast enginn og að hún horfi fram á mikla fjárhagslega erfiðleika. Hún sé einstæð móðir með fjögur börn á sínu framfæri og hún óskar þess að ítarlega verði farið yfir hennar mál. Hún sé atvinnulaus og hafi einungis 130–140 þúsund krónur til ráðstöfunar á mánuði.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður kveður skilyrði fyrir afgreiðslu þessa máls ekki vera uppfylltar að fullu þar sem áhvílandi veðskuldir séu 106% af verðmæti fasteignarinnar og falli því ekki undir úrræði um lánalækkun niður í 110% af verðmæti hennar. Til grundvallar hafi verið lagt verðmat löggilts fasteignasala, dags. 18. apríl 2011, þar sem fasteign kæranda hafi verið metin á 18.400.000 kr. Uppreiknað verðmæti fasteignar kæranda miðað við 110% hafi því verið 20.240.000 kr. Þar sem áhvílandi veðlán hafi numið 19.459.601 kr. hafi ekki verið uppfyllt skilyrði 1. gr. laga nr. 29/2011 um niðurfærslu lána kæranda.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er m.a. að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi óskar þess að mál hennar verði endurskoðað. Fyrir liggur að fasteign kæranda var metin af löggiltum fasteignasala til samræmis við reglu 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011. Er Íbúðalánasjóði heimilt að kalla eftir slíku mati á sinn kostnað, telji hann fasteignamat ekki gefa rétta mynd af verðmæti fasteignarinnar. Framangreint mat fasteignarinnar, dags. 18. apríl 2011, hefur verið lagt fram í málinu. Það stafar frá fasteignamiðluninni Húseign og er byggt á skoðun fasteignar kæranda sem fram fór þann 18. apríl 2011.

Í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 kemur fram að við verðmat fasteigna samkvæmt ákvæðinu skuli miða við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem er hærra. Samkvæmt fyrrgreindu ákvæði getur kærði aflað á eigin kostnað verðmats löggilts fasteignasala, telji hann skráð fasteignamat fyrir 2011 ekki gefa rétta mynd af verðmæti eignar. Við mat fasteignar kæranda var byggt á mati löggilts fasteignasala sem aflað var af hálfu kærða svo sem heimilt er samkvæmt framangreindum reglum, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögun nr. 44/1998. Verður því að fallast á þá málsmeðferð sem viðhöfð var í máli kæranda þegar metið var verðmæti fasteignar þeirra, en samkvæmt framangreindu ákvæði 3. mgr. 1. gr. laganna hefur vottorði löggilts fasteignasala verið gefið aukið vægi við mat á fasteign umsækjenda um niðurfærslu lána, en ekkert hefur komið fram um að matinu sé áfátt.

Verðmæti fasteignar kæranda var miðað við mat hins löggilta fasteignasala. Samkvæmt því var uppreiknað verðmæti fasteignar kæranda til samræmis við 110% reglu 1. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, 20.240.000 kr. Staða áhvílandi veðlána kæranda þann 1. janúar 2011 nam 19.459.601 kr. Því voru áhvílandi veðlán kæranda lægri en sem nemur uppreiknuðu verðmæti fasteignar hennar.

Íbúðalánasjóði ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Við mat fasteignar kæranda var byggt á mati löggilts fasteignasala sem aflað var af hálfu kærða svo sem heimilt er samkvæmt framangreindum reglum, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögun nr. 44/1998. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og skv. 1. og 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, sbr. ákvæði 1.1 og 1.3 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

Vakin skal athygli á því að í bréfi Íbúðalánasjóðs til kæranda, sem sent var í tölvupósti þann 5. júlí 2011, er tekið fram að kærandi hafi fjögurra vikna frest til þess að skjóta ákvörðuninni til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála. Þessi frestur er nú þrír mánuðir eftir breytingu sem gerð var með lögum nr. 152/2010 sem tóku gildi þann 1. janúar 2011.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um niðurfærslu lána A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum