Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 80/2011

Miðvikudaginn 2. nóvember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 80/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dags. 27. júní 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs frá 29. apríl 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 5. júlí 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 20.100.000 kr. Verðmat íbúðarinnar nam 25.100.000 kr. samkvæmt mati löggilts fasteignasala frá fasteignasölunni Neseignir sem fram fór þann 11. apríl 2011. Áhvílandi á íbúðinni voru 24.671.843 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi er einnig eigandi fasteignarinnar að C, sem metin er á 11.400.000 kr., en veðrými fasteignar er 1.700.399 kr. Einnig kemur fram að kærandi er eigandi bifreiðarinnar X sem metin er á 98.415 kr. Kærandi er eigandi ríkisverðbréfa að verðmæti 11.507 kr. og hlutabréfa að andvirði 500.787 kr. Ekki kom þó til þess að litið yrði til þeirra eigna við afgreiðslu umsóknar kæranda þar sem áhvílandi skuldir fasteignarinnar voru lægri en verðmæti fasteignarinnar uppreiknað miðað við 110% reglu laga nr. 29/2011.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 29. júní 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 6. júlí 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 27. júlí 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

  

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir niðurstöðu útreikninga Íbúðalánasjóðs vegna leiðréttingar lána í 110% leiðinni. Kærandi hefur lagt fram gögn sem sýna að hann hafi þann 11. september 2008 fengið undanþágu hjá Íbúðalánasjóði frá reglum um eina íbúð vegna undanþáguheimildar sem byggi á sérstökum fjölskylduaðstæðum.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður vísar til niðurstöðu útreikninga sjóðsins í máli kæranda, en þar kemur fram að staða íbúðarlána er innan við 110% af viðmiðunarverði sem í þessu tilviki sé verðmat löggilts fasteignasala. Það er mat Íbúðalánasjóðs að þegar af þeirri ástæðu falli málið ekki undir úrræði um niðurfærslu á veðkröfum, sbr. 1. gr. laga nr. 29/2011 til breytinga á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 kemur fram að við verðmat fasteigna samkvæmt ákvæðinu skuli miða við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem er hærra. Telji Íbúðalánasjóður skráð fasteignamat fyrir 2011 ekki gefa rétta mynd af verðmæti eignar skuli hann á eigin kostnað afla verðmats löggilts fasteignasala. Í lið 1.3 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011 kemur fram að við mat á verðmæti fasteigna skuli miðað við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem sé hærra. Ef kröfuhafi telji skráð fasteignamat fyrir 2011 ekki gefa rétta mynd af verðmæti eignarinnar kalli hann eftir verðmati löggilts fasteignasala á sinn kostnað. Svo sem að framan greinir nýtti kærði sér þessa heimild og leitaði til löggilts fasteignasala sem gaf vottorð um verðmæti fasteignarinnar, dags. 12. apríl 2011, en í vottorðinu kemur fram að það hafi verið byggt á skoðun fasteignarinnar sama dag. Verður því að fallast á þá málsmeðferð sem viðhöfð var í máli kæranda þegar metið var verðmæti fasteignar hans, enda ekkert fram komið um að verðmat fasteignarinnar hafi verið haldið göllum, og verður því framangreint verðmat fasteignarinnar lagt til grundvallar við meðferð umsóknar kæranda.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Eins og fram hefur komið hefur við mat fasteignar kæranda verið byggt á mati löggilts fasteignasala sem aflað var af hálfu kærða svo sem heimilt er samkvæmt framangreindum reglum, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögun nr. 44/1998. Samkvæmt verðmati löggilts fasteignasala á íbúð kæranda eru áhvílandi veðskuldir ekki umfram 110% af verðmæti fasteignar, eins og áskilið er í 1. gr. laga nr. 29/2011 og lið 1.3 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum 1. gr. laga nr. 29/2011 og í 1. gr. 1.3 og 2. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

  

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun á endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum