Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 100/2011

Miðvikudaginn 2. nóvember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 100/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dags. 15. júlí 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs frá 16. júní 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 16. júní 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 20.660.000 kr. Verðmat íbúðarinnar nam 110% af skráðu fasteignamati, eða 22.660.000 kr. Áhvílandi á íbúðinni voru 24.325.258 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að kærandi er eigandi bifreiðanna P metin á 800.000 kr., M metin á 1.200.000 kr. og Z metin á 524.880 kr. Ekki er ágreiningur um verðmæti bifreiðanna, en kærandi hefur borið því við að hann sé ekki lengur eigandi bifreiðanna.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 4. ágúst 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 15. ágúst 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 17. ágúst 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda þann 3. ágúst 2011.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir þá niðurstöðu útreikninga Íbúðalánasjóðs vegna leiðréttingar lána í 110% leiðinni að meta bifreiðaeign hans til frádráttar á niðurfærslu lána hans hjá Íbúðalánasjóði sem aðfararhæfar eignir. Þann 3. ágúst 2011 barst úrskurðarnefndinni bréf frá kæranda þar sem hann tilgreinir að breyting hafi orðið á bifreiðaeign hans þar sem bifreiðarnar P og M hafi verið seldar og að hann sé ekki lengur eigandi þeirra.

  

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að umrædd eigendaskipti að bifreiðum kæranda, P og M hafi ekki átt sér stað fyrr en í júní 2011 þannig að báðar bifreiðar hafi verið í eigu kæranda í ársbyrjun 2011. Reikna ber því með þeim sem aðfararhæfum eignum í samræmi við 1. gr. laga nr. 29/2011. Því beri að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Í máli þessu er ágreiningur um niðurfærslu á íbúðaláni kæranda vegna aðfararhæfra eigna hans.

Í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, sbr. lið 2.2 í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011, kemur fram að lántaki skuli upplýsa kröfuhafa um aðrar aðfararhæfar eignir samkvæmt lögum um aðför, nr. 90/1989. Reynist veðrými vera til staðar á aðfararhæfum eignum á niðurfærsla skulda að lækka sem því nemur. Með aðfararhæfum eignum er átt við allar eignir nema þær séu sérstaklega undanþegnar fjárnámi. Aðfararhæfar eignir eru til dæmis fasteignir, bifreiðar og bankainnistæður.

Í 1. gr. laga nr. 29/2011 kemur fram að Íbúðalánasjóði sé heimilt að færa niður veðkröfur sjóðsins á hendur einstaklingum að uppfylltum skilyrðum laganna, enda sé uppreiknuð staða veðkrafna þann 1. janúar 2011 umfram 110% af verðmæti umræddrar fasteignar. Af þessu leiðir að miða ber við stöðu veðkrafna þann 1. janúar 2011. Af því má ráða að miða ber frádrátt eigna eftir 2. mgr. 1. gr. laganna við sama tímamark, en af lögskýringargögnum má ráða að Íbúðalánasjóði sé heimilt að miða þar við skattframtöl til þess að hraða afgreiðslu mála. Þótt það breyti engu um rannsóknarskyldu Íbúðalánasjóðs í hverju og einu máli, meðal annars um verðmæti þeirra eigna sem dragast frá við afgreiðslu umsókna um niðurfærslu skulda, má af tilvísun til skattframtala umsækjenda í lögskýringargögnum ráða þá meginreglu að miða skuli við verðmæti þessara eigna eins og þær eru þann 1. janúar 2011. Verður ekki séð hvernig jafnræðis verði að öðrum kosti gætt við afgreiðslu umsókna um lækkun veðskulda.

Auk fasteignar sinnar að B var kærandi eigandi þriggja bifreiða þann 1. janúar 2011 eins og rakið hefur verið. Er hvergi að finna heimild til handa Íbúðalánasjóði um að leiðrétta endurútreikninga lána vegna seinna tilkominna atvika eins og sölu bifreiðanna í tilviki kæranda. Verður því ekki fallist á þá kröfu kæranda um leiðréttingu á niðurfærslu lána á þann veg að ekki komi til frádráttar á niðurfærslu lána vegna umræddra bifreiða, enda ber kærða að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber kærða að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 og 2. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

Vakin skal athygli á því að í bréfi Íbúðalánasjóðs til kæranda, dags. 16. júní 2011, er tekið fram að kærandi hafi fjögurra vikna frest til þess að skjóta ákvörðuninni til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála. Þessi frestur er nú þrír mánuðir eftir breytingu sem gerð var með lögum nr. 152/2010 sem tóku gildi þann 1. janúar 2011.
 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum