Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 57/2011

Miðvikudaginn 24. ágúst 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 57/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dagsettri 24. maí 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun wánasjóðs frá 3. maí 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 4. maí 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 14.100.000 kr. Verðmat íbúðarinnar nam samkvæmt mati fasteignasala sem byggðist á skoðun hans þann 18. apríl 2011 17.600.000 kr. Áhvílandi á íbúðinni voru 20.352.653 kr. Í endurútreikningnum kemur fram að frádráttur á niðurfærslu vegna annarra eigna kæranda hafi numið 264.870 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dagsettu 26. maí 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dagsettu 10. júní 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dagsettu 16. júní 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi færir fram þau rök að verðmat löggilts fasteignasala á íbúð hans B sé að minnsta kosti 1.500.000 kr. of hátt og segist kærandi miða við söluverð sambærilegra eigna. Kærandi vísar til auglýsingar þar sem fasteign í sömu götu, 89 fermetrar að stærð með fasteignamatinu 17.050.000 kr. og brunabótamati 22.050.000 kr., hafi verið auglýst til sölu á 19.600.000 kr., en kærandi telur líklegt að söluverðið verði frá 18.000.000 kr. til 18.500.000 kr. Til samanburðar bendir kærandi á að umrædd eign sé fullbúin og auk þess 20 fermetrum stærri en íbúð hans, en í íbúð hans vanti gólfefni. Telur kærandi að við samanburð á fasteignamati og brunabótamati á hans íbúð og umræddri eign sem auglýst er til sölu, megi sjá að verðmat á eign hans sé of hátt og því fer hann fram á að verðmat á íbúð hans verði lækkað um að minnsta kosti 1.000.000 kr.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að lagagrunnar afgreiðslu sjóðsins á umsóknum um endurútreikning íbúðarlána, séu lög nr. 29/2011 um breytingar á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál, með síðari breytingum, sem og samkomulag lánveitenda á íbúðamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Íbúðalánasjóður vísar til endurútreiknings á íbúðarláni kæranda þar sem fram kemur að 110% verðmæti fasteignar miðað við verðmat löggilts fasteignasala sé 19.360.000 kr. Til lækkunar íbúðarlána reiknist 727.783 kr., en Íbúðalánasjóði beri að miða við fasteignamat eða markaðsverð, en í máli kæranda hafi verið miðað við verðmat löggilts fasteignasala.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í máli þessu er ágreiningur um verðmat íbúðar kæranda í tengslum við niðurfærslu láns Íbúðalánasjóðs sem hvílir á íbúð kæranda. Kærandi telur verðmat fasteignar hans ekki gefa rétta mynd af raunvirði hennar. Í lið 1.3 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011 kemur fram að við mat á verðmæti fasteigna skuli miðað við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem sé hærra. Telji kröfuhafi að skráð fasteignamat fyrir 2011 gefi ekki rétta mynd af verðmæti eignarinnar kallar hann eftir verðmati löggilts fasteignasala á sinn kostnað. Í 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál, var Íbúðalánasjóði einnig veitt heimild til að afla verðmats löggilts fasteignasala á eigin kostnað, telji hann fasteignamat ekki gefa rétta mynd af verðmæti eignarinnar. Fyrir liggur að kærði nýtti sér þessa heimild og leitaði til löggilts fasteignasala sem gaf slíkt vottorð um verðmæti fasteignarinnar.

Kærandi hefur fært fram þau rök að verðmat á íbúð hans sé of hátt, meðal annars með vísan til þess að gólfefni vanti á hluta íbúðarinnar. Meðal gagna málsins er fyrrgreint verðmat löggilts fasteignasala, sem dagsett er 18. mars 2011, sem meðal annars er byggt á skoðun fasteignar kæranda. Í verðmati fasteignasalans er til þess vísað að gólfefni vanti á hluta íbúðarinnar. Með vísan til þess sem að framan er rakið verður hin kærða ákvörðun Íbúðalánasjóðs staðfest, en ekkert hefur fram komið um að verðmat hins löggilta fasteignasala sé haldið þeim annmörkum að líta eigi fram hjá því við mat fasteignar kæranda.

Vakin skal athygli á því að í bréfi Íbúðalánasjóðs til kæranda, dags. 4. maí 2011, er tekið fram að ákvörðun Íbúðalánasjóðs sé kæranleg til kærunefndar húsamála og að kærandi hafi fjögurra vikna frest til þess að kæra. Umrædd ákvörðun er kæranleg til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála skv. 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, og er kærufrestur nú þrír mánuðir eftir breytingu sem gerð var með lögum nr. 152/2010 sem tóku gildi þann 1. janúar 2011.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum