Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 54/2011

Miðvikudaginn 24. ágúst 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 54/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dagsettri 20. maí. 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs frá 2. maí 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði synjun um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni B í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 3. maí 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B 21.450.000 kr. Verðmat íbúðarinnar samkvæmt mati löggilts fasteignasala þann 29. mars 2011 var 26.000.000 kr. en staða áhvílandi lána á íbúðinni var 27.595.254 kr. Í endurútreikningi Íbúðalánasjóðs er gerð grein fyrir framangreindum atriðum, en þar kemur jafnframt fram að frádráttur vegna annarra eigna kæranda sé 1.844.577 kr., þótt ekki sé nánar tilgreint hvaða eignir þar um ræði, en kærandi hefur byggt á því að hún eigi engar slíkar eignir, utan bifreiðar sem keypt var við lægra verði fyrir um ári síðan.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dagsettu 24. maí 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dagsettu 6. júní 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dagsettu 8. júní 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi mótmælir því að hún eigi aðfararhæfar eignir sem nemi 1.844.577 kr. eins og fram komi í endurútreikningi Íbúðalánasjóðs frá 2. maí 2011. Einu eignir hennar fyrir utan fasteignina að B séu bifreið keypt fyrir ári síðan, en kaupverð bifreiðar hafi verið 1.390.000 kr. Aðrar eignir eigi hún ekki.

Kærandi segist vera lágum launum ásamt því að vera 75% öryrki og því biður hún um endurskoðun á niðurfærslu íbúðarláns hennar hjá Íbúðalánasjóði.

 

IV. Sjónarmið kærða

Í ákvörðunarbréfi sínu dags. 2. maí 2011 bendir Íbúðalánasjóður á að skilyrði fyrir afgreiðslu umsóknar kæranda hafi ekki verið uppfyllt þar sem áhvílandi veðskuldir séu 106% af verðmæti fasteignarinnar og falli því ekki undir úrræði um lækkun lána niður í 110% verðmæti hennar. Íbúðalánasjóður vísar til verðmats löggilts fasteignasala, dags. 29. mars 2011, en samkvæmt því fasteign kæranda metin á 26.000.000 kr. Með vísan til þess hafi umsókn kæranda verið synjað.

Í bréfi sínu til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 6. júní 2011, áréttar Íbúðalánasjóður að sjóðnum beri að miða við það sem er hærra, fasteignamat eða markaðsverð sem metið er af löggiltum fasteignasala. Í þessu tilviki sé verðmatið hærra, sbr. lög nr. 29/2011. Þar sem áhvílandi íbúðarlán séu innan við 110% af verðmæti íbúðar samkvæmt uppreiknuðu verðmati, hafi niðurfærsla lána þegar af þeirri ástæðu ekki komið til álita.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi óskar þess að mál hennar verði endurskoðað, þar sem það sé rangt sem fram komi í bréfi kærða, dags. 2. maí 2011, að kærandi eigi eignir að fjárhæð 1.844.577 kr. Fyrir liggur að fasteign kæranda var metin af löggiltum fasteignasala til samræmis við reglu 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011. Er Íbúðalánasjóði heimilt að kalla eftir mati löggilts fasteignasala á sinn kostnað, telji hann fasteignamat ekki gefa rétta mynd af verðmæti fasteignarinnar Framangreint mat fasteignarinnar hefur verið lagt fram í málinu, en það stafar frá löggiltum fasteignasala og er dagsett 29. mars 2011.

Verðmæti fasteignar kæranda miðað við mat hins löggilta fasteignasala, uppreiknað til samræmis við 110% reglu 1. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, er því 28.600.000 kr. Hins vegar eru áhvílandi veðlán kæranda 27.595.254 kr., eða lægri en verðmæti fasteignarinnar. Kom því aldrei til þess að litið væri til annarra eigna umsækjanda.

Íbúðalánasjóði ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Við mat fasteignar kæranda var byggt á mati löggilts fasteignasala sem aflað var af hálfu kærða svo sem heimilt er samkvæmt framangreindum reglum, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögum nr. 44/1998. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og skv. 1. og 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, sbr. ákvæði 1.1 og 1.3 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila, verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

Vakin skal athygli á því að í bréfi Íbúðalánasjóðs til kæranda, dags. 3. maí 2011, er tekið fram að ákvörðun Íbúðalánasjóðs sé kæranleg til kærunefndar húsamála og að kærandi hafi fjögurra vikna frest til þess að kæra. Nefndin heitir nú úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir breytingu sem gerð var með lögum nr. 66/2010 sem tóku gildi þann 1. júlí 2010. Málskotsfrestur er nú þrír mánuðir, eftir breytingu sem gerð var með lögum nr. 152/2010 sem tóku gildi þann 1. janúar 2011.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun á endurútreikningi á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum