Hoppa yfir valmynd
13. maí 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 15/2011

Föstudaginn 13. maí 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 15/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dagsettri 1. mars 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs frá 7. febrúar 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði synjun um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði vegna kaupa hennar á íbúð á B-götu nr 9 í í sveitarfélaginu D. Um íbúðaskipti var að ræða, en skipt var á íbúðinni að B-götu nr. 9 og C-götu nr. 4 í sveitarfélaginu D. Dagsetning kaupsamningsins um íbúðaskiptin er 20. apríl 2010.

Með bréfi, dagsettu 4. mars 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dagsettu 18. mars 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dagsettu 22. mars 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs ásamt meðfylgjandi gögnum sent kæranda til kynningar og henni gefinn kostur á að koma einhverju frekar á framfæri óskaði hún þess. Ekki hafa borist frekari athugasemdir frá kæranda.

 

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi segir að skipti hafi orðið á íbúðum að B-götu nr. 9 og á C-götu nr. 4, báðar í sveitarfélaginu D. Hún segir að sér hafi verið synjað um endurútreikning lána á núverandi eign hennar að B-götu nr. 9. Hún hafi sótt um að flytja lánin sem hún hafi verið með á fyrri eign sinni að C-götu nr. 4 yfir á B-götu nr. 9 en því hafi verið synjað og lagt hafi verið til að eigendur eignanna yfirtækju þau lán sem á þeim hvíldu. Kærandi kveðst í upphafi alls ekki hafa viljað yfirtaka lánin á B-götu nr. 9, en Íbúðalánasjóður hafi sett það sem skilyrði fyrir sölunni og hafi það orðið úr.

 

III. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður bendir á að umsókn kæranda falli undir samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila. Skýrt sé kveðið á um í grein 1.2 samkomulagsins að það taki einungis til skulda sem stofnað hafi verið til vegna fasteignakaupa umsækjenda fyrir árið 2009. Kærandi hafi keypt íbúðina að B-götu nr. 9 á árinu 2010 þannig að skuldir vegna hennar falli ekki undir úrræði um niðurfærslu lána að 110% af verðmæti eignar. Kærandi hafi keypt íbúðina að B-götu nr. 9 með kaupsamningi, dagsettum 20. apríl 2010, á 21.000.000 kr. með yfirtöku á ÍLS-veðbréfum samtals 20.016.584 kr. og greiðslu 983.416 kr.

 

IV. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er m.a. að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi sótti um fyrirgreiðslu til Íbúðalánasjóðs á grundvelli samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila. Samkomulagið er dagsett 15. janúar 2011. Samkvæmt ákvæði 1.2 í samkomulaginu sem fjallar um skuldir tekur fyrirgreiðsla samkvæmt samkomulaginu einungis til skulda sem stofnað var til vegna fasteignakaupa fyrir árið 2009. Engar undanþágur er að finna í samkomulaginu, þess efnis að yngri fasteignaviðskipti gætu átt þar undir.

Við mat þess hvort kærandi eigi rétt til þeirrar fyrirgreiðslu sem hann hefur sótt um, verður að líta til þeirra gagna sem fram hafa verið lögð í málinu. Af gögnum málsins má ráða að kærandi keypti íbúð að B-götu nr. 9 þann 20. apríl 2010, samkvæmt kaupsamningi, innfærðum hjá sýslumanninum í sveitarfélaginu D þann 12. maí 2010. Samkvæmt framangreindum upplýsingum, fóru kaupin fram á árinu 2010 og í ljósi framangreinds er hin kærða ákvörðun Íbúðalánasjóðs staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um endurútreikning á lánum A, er staðfest.

 

 

Ása Ólafsdóttir, formaður

Margrét Gunnlaugsdóttir                                                Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum