Hoppa yfir valmynd
14. desember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 3/2010

Þriðjudaginn 14. desember 2010 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 3/2010:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R

Með bréfi A, mótteknu 9. ágúst 2010, var kærð til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs á áframhaldandi frystingu á íbúðarláni.

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, getur málsaðili skotið ákvörðun Íbúðalánasjóðs, húsnæðisnefndar eða þeirrar nefndar á vegum sveitarfélags sem falið hefur verið verkefni húsnæðisnefndar til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum. Skal það gert innan fjögurra vikna frá því viðkomandi barst vitneskja um hina kæranlegu ákvörðun. Bréf Íbúðalánasjóðs til kæranda, þar sem ákvörðunin er kynnt, er dagsett 29. júní 2010, en kæran var móttekin hjá úrskurðarnefndinni 9. ágúst 2010. Hafði bréfið að geyma leiðbeiningar til kæranda um hvert ætti að beina kæru vegna ákvörðunarinnar og innan hvaða tímamarka.

Þrátt fyrir að kærufrestur skv. 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, hafi verið liðinn er kæran barst úrskurðarnefndinni ákvað nefndin að kanna hvort skilyrði 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, væru fyrir hendi til að víkja frá kærufresti svo unnt yrði að taka málið til meðferðar. Í 1. mgr. 28. gr. þeirra laga segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Af gögnum málsins verður ekki séð að framangreind skilyrði eigi við í máli kæranda. Nefndin kemst því að þeirri niðurstöðu að samkvæmt því beri að vísa máli kæranda frá þar sem það er of seint fram borið.

Afskiptum úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála af kæru A vegna synjunar Íbúðalánasjóðs í máli hennar frá 9. ágúst 2010 er því hér með lokið.

 

Úrskurð þennan kváðu upp Ása Ólafsdóttir formaður, Margrét Gunnlaugsdóttir og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Úrskurðarorð

Kæru A er vísað frá.

 

 

Ása Ólafsdóttir, formaður

Margrét Gunnlaugsdóttir

Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum