Hoppa yfir valmynd
9. desember 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 26/2015

Kærunefnd barnaverndarmála

Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

 

Miðvikudaginn 9. desember 2015 tók kærunefnd barnaverndarmála fyrir mál A, gegn barnaverndarnefnd B varðandi aðgang að gögnum, nr. 26/2015.

Kveðinn var upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R:

Með bréfi 22. september 2015 skaut C hdl., fyrir hönd A, úrskurði barnaverndarnefndar B frá 19. ágúst 2015, vegna synjunar á aðgangi að gögnum er varða kæranda og/eða börn hennar, D, og E, til kærunefndar barnaverndarmála. Fram kemur í bréfi Fjölskyldu- og fræðslusviðs B 20. ágúst 2015 til lögmanns kæranda að málið hafi verið tekið fyrir í Fjölskyldu- og tómstundaráði B, sem fari með umboð barnaverndarnefndar B, 19. ágúst 2015. 

Samkvæmt hinum kærða úrskurði var kæranda veittur aðgangur að bréfi til barnaverndarnefndar F, bókun barnaverndarnefndar B vegna málsins, niðurstöðum könnunar máls og meðferðaráætlun í málinu. Frekari aðgangi að gögnum var hafnað. Úrskurðarorð hins kærða úrskurðar eru svohljóðandi auk þess sem þar er bent á kæruheimild til kærunefndar barnaverndarmála:

1. Barnaverndarnefnd B samþykkir að móðir fái aðgang að eftirfarandi gögnum:

  1. Bréf sent til Barnaverndarnefndar F

  2. Bókun Barnaverndarnefndar vegna málsins

  3. Niðurstöður könnunar máls

  4. Meðferðaráætlun

2. Barnaverndarnefnd B hafnar aðgangi að frekari gögnum, sem varða öll kært kynferðisbrot stjúpföður gegn barninu, með þeim rökstuðningi að afhending þeirra þjóni ekki hagsmunum stúlkunnar og geti skaðað rannsóknarhagsmuni lögreglu.

Úrskurður þessi skal gilda þar til ákvörðun ríkissaksóknara um saksókn í málinu liggur fyrir og skal þá endurskoðaður ef foreldri krefst þess, en fyrr ef aðstæður krefjast þess.“

Kærandi krefst þess að hún fái aðgang að öllum gögnum er varða hana og börn hennar. Til vara, ef ekki verður fallist á að hún fái afhent afrit af öllum gögnum málsins, krefst kærandi þess að hún og lögmaður hennar fái aðgang að öllum gögnum málsins og fái að kynna sér þau.

 

Af hálfu barnaverndarnefndar B er þess krafist að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

I. Málavextir

Stúlkan D er X ára gömul og drengurinn E er X ára gamall. Kærandi og faðir barnanna fara sameiginlega með forsjá þeirra.

Í hinum kærða úrskurði kemur fram að með bréfi lögmanns kæranda 31. júlí 2015 hafi verið óskað eftir afriti af öllum þeim gögnum sem til væru í máli hennar og barna hennar fyrir barnaverndarnefnd B. Fram kemur einnig að áður hefði yfirfélagsráðgjafi tekið ákvörðun um að synja beiðni kæranda frá 15. júlí 2015 um afhendingu gagnanna en bent á að barnaverndarnefnd B gæti úrskurðað um málið.

Í máli þessu er um að ræða gögn í máli stúlkunnar D en samkvæmt því sem fram kemur í hinum kærða úrskurði hefur ekki verið til meðferðar hjá barnaverndarnefndinni mál vegna bróður hennar, E.

Á fundi barnaverndarnefndar B 19. ágúst 2015 var beiðni kæranda tekin fyrir. Með úrskurði sama dag var beiðnin tekin til greina hvað varðar tiltekin gögn en hafnað varðandi frekari aðgang að gögnum.

II. Afstaða kæranda

Í kæru er vísað til kæruheimildar í 1. mgr. 54. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.), en á væntanlega að vera 1. mgr. 51. gr. laganna. Þá segir í kærunni að  samkvæmt 45. gr. bvl. skuli barnaverndarnefnd með nægilegum fyrirvara láta aðilum máls í té öll gögn sem málið varða og koma til álita við úrlauns þess, enda tryggi þeir trúnað. Í 2. mgr. sömu lagagreinar sé að finna undanþágu frá meginreglu 45. gr. en þar segi að barnaverndarnefnd geti með rökstuddum úrskurði takmarkað aðgang aðila að tilteknum gögnum ef hún telji að það geti skaðað hagsmuni barns og samband þess við foreldra eða aðra. Nefndin geti einnig úrskurðað að aðilar og lögmenn þeirra geti kynnt sér skjöl og önnur gögn án þess að ljósrit af þeim séu afhent.

Í kærunni er vísað til þess að ekki sé að sjá að hvaða leyti það geti hugsanlega skaðað hagsmuni barnanna að kæranda, sem sé móðir barnanna, séu veittar upplýsingar hvað málið varði.

Ríkir hagsmunir standi til þess að kærandi fái afhent afrit af þeim gögnum sem hér um ræði en málið varði meint kynferðisofbeldi innan fjölskyldu kæranda og því augljósir hagsmunir í því fólgnir að hún fái að kynna sér þau gögn til hlítar, enda um alvarlegt mál að ræða sem varði börn hennar.

Kæranda hafi ekki formlega verið tilkynnt um það mál sem til athugunar sé varðandi dóttur hennar, D, og meint kynferðisofbeldi í garð hennar af hálfu sambýlismanns kæranda, hvorki frá barnaverndarnefndinni né lögreglunni. Kærandi sé afar ósátt við það og telji það raunar grafalvarlegt enda sé um að ræða ósjálfráða X ára gamla stúlku er lúti forsjá kæranda.

Kærandi hafi fengið verulega takmarkaðan aðgang að gögnum málsins og enn hafi hún ekki fengið að sjá skýrslu varðandi það hvað umræddar ásakanir snúist um. Kærandi telur nauðsynlegt að hún fái afrit af þeim gögnum sem um ræði enda lúti málið að ósjálfráða dóttur hennar og raunar ekki að sjá nein rök því til stuðnings að gögnum sé haldið frá henni.

Kærandi hafi þá tilfinningu að komið sé fram við hana líkt og hún liggi undir grun, sem sé algjörlega fráleitt enda sé hún móðir barnanna og vilji þeim aðeins það besta.

Kærandi krefst þess að tekið verði mið af sameiginlegum hagsmunum hennar og barnanna. Það sé algjört grundvallaratriði að kærandi fái að kynna sér gögn málsins, enda um að ræða alvarlegt mál, er varði ósjálfráða börn hennar.

Í athugasemdum kæranda við greinargerð barnaverndarnefndar B 11. nóvember 2015 kemur fram að hún mótmæli greinargerðinni þar sem þar sé dregin upp dökk mynd af kæranda sem eigi ekki við nokkur rök að styðjast heldur einkennist af ályktunum starfsmanna barnaverndarnefndar B og persónulegu mati þeirra á kæranda.

Í greinargerðinni komi fram að samkvæmt samtali starfsmanns barnaverndarnefndar B við lögreglustjóra sé það afstaða lögreglunnar að hætta sé á að rannsóknarhagsmunir séu í húfi verði kæranda birt gögnin. Engin gögn hafi hins vegar verið lögð fram sem styðji þessa fullyrðingu en eðlilegt væri að mati kæranda að yfirlýsing lögreglustjórans er varði málið yrði lögð fram sé um slíka yfirlýsingu að ræða.

Fram komi að hagsmunir barnsins skuli virtir framar hagsmunum kæranda á að fá að kynna sér gögn málsins. Kærandi telur hins vegar litið fram hjá því að hér sé í raun um sameiginlega hagsmuni kæranda og barnsins að ræða. Það hljóti að vera málinu til framdráttar að kærandi, sem sé móðir stúlkunnar sem um ræði, sé upplýst um allar hliðar málsins. Eins og fram hafi komið sé hér um að ræða grafalvarlegt mál er varði meint kynferðisofbeldi innan fjölskyldu kæranda og því augljósir hagsmunir í því fólgnir að kærandi fái að kynna sér gögnin.

Óumdeilt sé að kæranda hafi ekki enn verið formlega tilkynnt um það mál sem til athugunar sé. Auk þess sem kærandi hafi verulega takmarkaðan aðgang fengið að gögnum málsins hafi hún ekki enn fengið að sjá skýrslu varðandi það hvaða ásakanir sé um að ræða. Kærandi hafi í raun ekki frétt af málinu fyrr en sex vikum eftir að dóttir hennar tilkynnti upphaflega um málið og þá frá sambýlismanni sínum.

Kærandi sé afar ósátt við vinnubrögð barnaverndarnefndar B og telur að allt frá upphafi hafi verið komið fram við hana líkt og mótherja. Þess verði að gæta að alltaf séu tvær hliðar á öllum málum en það hafi reynst kæranda afar erfitt að koma sinni hlið á framfæri þar sem hún hafi ekki fengið þær upplýsingar sem fram hafi komið í málinu. Það sé ólíkt því sem eigi við um barnsföður hennar sem búsettur sé í B, en hann hafi fengið allar upplýsingar varðandi málið um leið og þær hafi borist og telur kærandi því að vinnubrögð barnaverndarnefndar B hafi einkennst af mismunun allt frá upphafi.

Kærandi hafi sent bréf til Barnaverndarstofu 11. júlí 2015 vegna athugasemda sem hún geri við málsmeðferð fjölskyldu- og tómstundaráðs B og hafi henni verið tilkynnt að málið sé til skoðunar.

Kærandi vilji dóttur sinni að sjálfsögðu vel. Síðustu mánuðir hafi verið afar erfiðir fyrir alla fjölskylduna og miklar deilur hafi staðið yfir. Það skyggi þó ekki á það að kærandi beri hagsmuni dóttur sinnar ætíð fyrir brjósti. Kærandi telur það mikilvægt fyrir málið að hún fái að kynna sér gögn málsins og krefst þess að tekið verði mið af sameiginlegum hagsmunum hennar og dóttur hennar.

IV. Afstaða barnaverndarnefndar B

Í greinargerð barnaverndarnefndar B 1. október 2015 segir að líkt og komi fram í bókun barnaverndarnefndarinnar 19. ágúst 2015 sé um að ræða gögn í máli D, en ekki sé skráð mál fyrir barnaverndarnefnd B vegna E. Um sé að ræða mál er varði ósk barnaverndarnefndarinnar til lögreglu um rannsókn á refsiverðu broti samvkæmt 20. gr. reglugerðar nr. 56/2004 um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd vegna gruns um kynferðisbrot stjúpföður gegn D.

Kærandi sé sambýliskona meints geranda og hafi komið fram við vinnslu málsins að hún styðji sambýlismann sinn og lýsi því yfir að stúlkan fari með ósannindi. Hún hafi að auki neitað að tala við stúlkuna eftir að hafa í samtali við hana komið á framfæri þeirri skoðun sinni að stúlkan sé búin að eyðileggja fjölskylduna og að þær geti aldrei verið saman aftur á eðlilegan hátt. Afstaða kæranda til málsins hafi valdið barninu miklum kvíða og vanlíðan og telur barnaverndarnefndin augljóst að það sé til þess fallið að stefna sambandi foreldris og barns í enn frekari hættu ef kærandi fái aðgang að þeim gögnum sé um ræði ásamt því að auka á vanlíðan stúlkunnar.

Að auki sé um að ræða mál sem sé enn í vinnslu og til rannsóknar hjá lögreglu og í þeim gögnum sem um ræði komi fram upplýsingar er varði rannsóknarhagsmuni. Samkvæmt samtali starfsmanns barnaverndarnefndarinnar við lögreglustjóra sé það afstaða lögreglunnar að hætta sé á að rannsóknarhagsmunum yrði stefnt í hættu ef gögnin verði birt kæranda, ekki síst þar sem hún sé sambýliskona meints geranda og hafi tekið yfirlýsta afstöðu með honum í málinu.

Að samanlögðu sé það álit barnaverndarnefndarinnar og starfsmanna hennar að hagsmunir barnsins skuli virtir framar þeim hagsmunum kæranda að fá að kynna sér nánar þau gögn sem til staðar séu í málinu. Kærandi hafi fengið afrit af niðurstöðu könnunar máls, meðferðaráætlun, bókun nefndarinnar vegna lögreglukæru og bréfasamskiptum við barnaverndarnefnd F. Ekki liggi fyrir, né sé væntanleg, nein ákvörðun í málinu af hálfu barnaverndarnefndar B önnur en að veita barninu stuðning, sbr. áætlun um meðferð máls. Hagsmunir kæranda til að fá aðgang að gögnum hljóti því að teljast minniháttar í samanburði við þá hagsmuni barnsins að beðið sé með afhendingu gagnanna a.m.k. þar til rannsókn lögreglu ljúki.

Gögn þau sem kæranda hafi verið hafnaður aðgangur að samkvæmt hinum kærða úrskurði séu í fyrsta lagi tilkynning í málinu 12. maí 2015. Í því skjali komi fram lýsingar stúlkunnar á meintu kynferðisbroti stjúpföður gegn henni. Skjalið sé talið snerta rannsóknarhagsmuni en einnig talið geta skaðað tengsl stúlkunnar við kæranda ef gögnin yrðu birt. Í öðru lagi sé bréf barnaverndarnefndarinnar til lögreglu vegna gruns um refsiverðan verknað 13. maí 2015 og sömu röksemdir eigi við um þetta skjal og fyrrnefnt skjal. Í þriðja lagi sé tilvísun í Barnahús 12. júní 2015 og greinargerð með tilvísun í Barnahús 11. júní 2015. Auk fyrrgreindra röksemda komi fram ítarlegri upplýsingar um samskiptaerfiðleika kæranda og stúlkunnar og meðal annars áhyggjur stúlkunnar af viðbrögðum kæranda vegna málsins. Talið sé mikilvægt að gæta trúnaðar við stúlkuna vegna þessara upplýsinga. Í fjórða lagi liggi fyrir minnisblöð starfsmanna í málinu, sem hafi öll að geyma mjög viðkvæmar upplýsingar um tengsl og samskipti kæranda og stúlkunnar, og upplýsingar er tengist rannsóknarhagsmunum hjá lögreglu og eru taldar geta skaðað tengsl stúlkunnar og kæranda og raskað hagsmunum stúlkunnar ef kærandi fengi aðgang að þessum gögnum.

Til gagna málsins teljist einnig kvörtun kæranda til Barnaverndarstofu, bréfi stofunnar til barnaverndarnefndarinnar 6. ágúst 2015 og svarbréf barnaverndarnefndarinnar 25. ágúst 2015 auk þeirra gagna sem lögmanni kæranda hafi verið send samkvæmt úrskurði barnaverndarnefndarinnar, þ.e. meðferðaráætlun, niðurstöður könnunar máls, bréf til barnaverndarnefndar F og bókanir barnaverndarnefndar B vegna málsins.

VI. Niðurstaða

Mál þetta varðar beiðni kæranda 31. júlí 2015 til Fjölskyldu- og tómstundaráðs B um aðgang að öllum gögnum er varða börn hennar. Verði ekki fallist á að gögnin verði afhent kæranda krafðist hún þess til vara að hún og lögmaður hennar fengju aðgang að þeim og að kynna sér þau. Með hinum kærða úrskurði var beiðni kæranda synjað en kærandi kærði úrskurðinn eins og að framan greinir.

Í máli þessu liggur fyrir að barnaverndarnefnd B óskaði eftir lögreglurannsókn á meintum kynferðisbrotum sambýlismanns kæranda gagnvart dóttur kæranda 13. maí 2015. Samkvæmt gögnum málsins var það gert í tilefni af því að dóttirin hafði skýrt frá hinu meinta broti 12. maí s.á. Samkvæmt 20. gr. reglugerðar um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd nr. 56/2004 skal barnaverndarnefnd að jafnaði óska lögreglurannsóknar ef grunur leikur á að alvarlegt refsivert brot hafi verið framið gagnvart barni.

Af hálfu kæranda er vísað til þess að um grafalvarlegt mál sé að ræða er varði meint kynferðisofbeldi innan fjölskyldu kæranda og því augljósir hagsmunir í því fólgnir að hún fái að kynna sér gögnin sem um ræði. Það hljóti að vera málinu til framdráttar að kærandi, sem sé móðir stúlkunnar, sé upplýst um allar hliðar málsins. Barnaverndarnefndin telji að hagsmunir barnsins skuli virtir framar hagsmunum kæranda en kærandi telur hins vegar að litið sé framhjá því að um sameiginlega hagsmuni hennar og barnsins sé að ræða. Engin gögn styðji það að rannsóknarhagsmunir séu í húfi verði kæranda veittur aðgangur að umræddum gögnum.

Hinn kærði úrskurður er byggður á því að nauðsynlegt hafi verið að takmarka aðgang kæranda að framangreindum gögnum, er varða mál dóttur hennar fyrir barnaverndarnefndinni, í þeim tilgangi að gæta hagsmuna barnsins. Vísað er þar til heimildar í 2. mgr. 45. gr. barnaverndarlaga til að takmarka aðganga að gögnum, en þar segir að barnaverndarnefnd geti með rökstuddum úrskurði takmarkað aðgang aðila að tilteknum gögnum ef hún telur að það geti skaðað hagsmuni barns og samband þess við foreldra eða aðra. Gögnin sem hafnað var með hinum kærða úrskurði að kærandi hafi aðgang að eru samkvæmt lýsingum barnaverndarnefndarinnar: Tilkynning í málinu 12. maí 2015 þar sem fram komi lýsing stúlkunnar á hinu meinta kynferðisbroti, bréf barnaverndarnefndar til lögreglu 13. maí 2015 þar sem m.a. komi fram sömu upplýsingar og í framangreindri tilkynningu, tilvísun til Barnahúss 12. júní 2015 og greinargerð 11. júní 2015 þar sem auk sömu upplýsinga og í framangreindum skjölum komi fram ítarlegar upplýsingar um samskiptaerfiðleika foreldris og barns og m.a. áhyggjur barnsins af viðbrögðum kæranda vegna málsins og dagnótur, þ.e. minnisblöð starfsmanna, þar sem fram komi mjög viðkvæmar upplýsingar um tengsl og samskipti barnsins og kæranda og upplýsingar er tengjast rannsóknarhagsmunum.

Í hinum kærða úrskurði er vísað til þess að málið sé viðkvæmt þar sem meintur gerandi sé innan fjölskyldunnar, kærandi hafi ekki lýst því yfir að hún styðji dóttur sína í kærumálinu, sem lögreglan fari með, en meintur gerandi sé sambýlismaður kæranda, og rökstuddur grunur sé fyrir því að kærandi dragi frásögn dóttur sinnar í efa og hafi tekið afstöðu með sambýlismanni sínum. Í úrskurðinum er enn fremur vísað til þess að starfsmenn barnaverndarnefndarinnar telji augljóst að afstaða kæranda til málsins hafi valdið barninu vanlíðan og kvíða.

Við mat á því hvort aðstæður eru með þeim hætti að aðgangur kæranda að umræddum gögnum geti skaðað hagsmuni barnsins og samband þess við foreldra og aðra verður að taka tillit til þeirrar stöðu sem barnið er í. Eins og fram hefur komið býr barnið hjá föður sínum í B en kærandi býr á F. Málið er alvarlegt og verður ekki dregið í efa að það valdi stúlkunni vanlíðan og kvíða á þann hátt sem lýst er í hinum kærða úrskurði og hér að framan er rakið. Fram kemur í gögnum málsins að kærandi dregur í efa sannleiksgildi framburðar stúlkunnar varðandi meint kynferðisbrot. Kærunefndin er ekki sammála þeirri afstöðu kæranda að hagsmunir hennar og stúkunnar fari saman.  Á meðan málið er ekki til lykta leitt og er enn í vinnslu er augsýnilegt að með því að afhenda viðkvæm gögn í málinu geti það haft áhrif á samband mæðgnanna enn frekar. Í því sambandi þarf stúlkan að njóta vafans til þess að hagsmunir hennar verði nægilega tryggðir. Mikilvægt er að tefla ekki rannsóknarhagsmunum í tvísýnu en með því er jafnframt verið að vernda hagsmuni stúlkunnar. Þrátt fyrir lýsingar kæranda á því að hagsmunir hennar og stúlkunnar fari saman og að hún beri hag stúlkunnar ávallt fyrir brjósti getur það ekki hnekkt því mati sem hér hefur verið lagt á hagsmuni stúlkunnar í þessu tilliti. Að þessu virtu þykir fullnægt þeim skilyrðum 2. mgr. 45. gr. barnaverndarlaga fyrir því að takmarka aðgang kæranda að umræddum gögnum. Verður ekki séð að nokkrir annmarkar hafi verið á meðferð málsins af hálfu barnaverndarnefndarinnar í B. Með vísan til þessa ber að staðfesta hinn kærða úrskurð. 

Úrskurðarorð

 

Úrskurður barnaverndarnefndar B frá 19. ágúst 2015 varðandi synjun á aðgangi að gögnum, er staðfestur.

Sigríður Ingvarsdóttir, formaður

Guðfinna Eydal

Jón R. Kristinsson

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum