Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 35/2014, úrskurður 9. apríl 2014

Mál nr. 35/2014
Eiginnafn: Christa

 Hinn 9. apríl kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 35/2014 en erindið barst nefndinni 2. apríl. Fyrir liggur að áður hafa sömu aðilar sótt um að fallist verði á nafnið Christa (kvk.) Þar sem frestir til að óska endurupptöku fyrra máls eru liðnir er málið tekið fyrir á nýjum grunni.

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Ritháttur nafnsins Christa (kvk.) er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn c er ekki notaður í íslenskri stafsetningu. Á þennan rithátt nafnsins er því aðeins heimilt að fallast ef hann telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Vegna athugasemda í umsókn um áhrif dóma sem fallið hafa um túlkun laga um mannanöfn skal tekið fram að í þeim tveimur málum sem gengið hafa á síðustu misserum um mannanöfn hér á landi er ekki tekið á sambærilegum atriðum og til umfjöllunar eru í máli þessu. Í báðum þeim málum reyndi á rétt einstaklings til að bera tiltekið nafn, en ekki á rithátt þess. Það atriði ásamt öðrum leiðir til þess að fyrrgreindir dómar eru ekki fordæmi fyrir úrlausn þessa máls. Mannanafnanefnd tekur mið af dómaframkvæmd í störfum sínum, m.a. við mat á hugtakinu hefð í lögum um mannanöfn. Það leiðir hins vegar ekki sjálfkrafa til þess að fallist verði á fyrirliggjandi umsókn. 

Til stuðnings við mat á hefð í 5. gr. laga um mannanöfn hefur mannanafnanefnd stuðst við vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum. Er í reglunum byggt á því að hugtakið hefð í lögum um mannanöfn varði einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli 1703 þegar manntal var tekið fyrsta sinni. Vinnulagsreglurnar eru svohljóðandi:

 1.      Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannanafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna, bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru fjórar konur skráðar með eiginnafnið Christa sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna og er sú elsta þeirra fædd árið 1981. Í hugtakinu hefð felst eðli málsins samkvæmt að til staðar þarf að vera nokkuð fastmótuð framkvæmd eða venja. Þrátt fyrir að mannanafnanefnd telji að beita beri rúmri túlkun í þessu efni, til hagsbóta fyrir þá einstaklinga sem um ræðir, verður ekki talið að hér sé um nægilega marga nafnbera að ræða til þess að rithátturinn Christa teljist hefðaður í íslensku.

Því telst ekki vera hefð fyrir rithættinum Christa.

 Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Christa (kvk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum