Hoppa yfir valmynd
5. september 2013 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 59/2013, úrskurður 5. september 2013

Mál nr. 59/2013
Eiginnafn: Dúnna

Hinn 5. september 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 59/2013 en erindið barst nefndinni 3. september:

Eiginnafnið Dúnna (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Dúnnu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dúnna (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum