Hoppa yfir valmynd
29. júlí 2013 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 44/2013, úrskurður 29. júlí 2013 

Mál nr. 44/2013
Eiginnafn: Elía

 Hinn 29. júlí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 44/2013 en erindið barst nefndinni 25. júlí:

Eiginnafnið Elía (kk.) er eins í öllum föllum rétt eins og nafnorðin herra og séra: Elía (nf.), Elía (þf.), Elía (þgf.) og Elía (ef.), og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Tekið skal fram að eiginnafnið Elía á rætur að rekja til Biblíunnar, sbr. Elía spámann, og hefur unnið sér hefð sem eiginnafn á karlmanni í íslenskri tungu. Vegna þessarar sérstöðu brýtur nafnið því ekki gegn 2. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn þótt það sé einnig á skrá sem eiginnafn konu.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Elía (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum