Hoppa yfir valmynd
22. mars 2013 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 21/2013, úrskurður 22. mars 2013

Mál nr. 21/2013                    Eiginnafn:     Ofur


Hinn 22. mars 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 21/2013:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Eiginnafnið Ofur (kk.) er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Það uppfyllir því skilyrði 3. málsliðar. Nafnið uppfyllir hins vegar ekki skilyrði 1. málsliðar um að eiginnafn skuli geta tekið íslenska eignarfallsendingu  né  2. málsliðar, um íslenskt málkerfi. Íslenskt málkerfi er samansafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Eiginnafnið Ofur virðist annaðhvort leitt af atviksorðinu eða forliðnum ofur en engin hefð er fyrir því að eiginnöfn séu mynduð á þann hátt. Eiginnafnið Ofur uppfyllir þar af leiðandi ekki öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ofur (kk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum