Hoppa yfir valmynd
5. september 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 55/2012, úrskurður 5. september 2012

Mál nr. 55/2012                    Millinafn: Rein

                                               Eiginnafn: Rein

Hinn 5. september 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 55/2012 en erindið barst nefndinni 6. september. Erindið var áður tekið fyrir á fundi 13. september en frestað.

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, eru nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð í íslensku máli sem annaðhvort eiginnöfn karla eða kvenna, ekki heimil sem millinöfn. Nafnið Rein hefur verið notað sem eiginnafn í íslensku. Á millinafnið Rein er því ekki heimilt að fallast.

Eiginnafnið Rein (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Reinar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 
Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Rein er hafnað.

Beiðni um eiginnafnið Rein (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum