Hoppa yfir valmynd
8. ágúst 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 48/2012, úrskurður 8. ágúst 2012

Mál nr. 48/2012                   Eiginnafn: Gíta

 

Hinn 8. ágúst 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 48/2012 en erindið barst nefndinni 1. ágúst.

Eiginnafnið Gíta (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Gítu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Gíta (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum