Hoppa yfir valmynd
14. maí 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 14. maí 2012

Mál nr. 23/2012                   Eiginnafn:     Damien

 

Hinn 14. maí 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 23/2012 en erindið barst nefndinni 7. maí:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Ritháttur nafnsins Damien (kk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem e er ekki ritað á eftir einhljóðinu i. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

  1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
    5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár bera tveir drengir nafnið Damien og er sá eldri þeirra fæddur 1996.

Eiginnafnið Damien uppfyllir þar af leiðandi ekki öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Damien (kk.) er hafnað.

 

 

 

Mál nr. 24/2012                    Eiginnafn:     Þórsteinunn

 

Hinn 14. maí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 24/2012:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. tvö hér að ofan. Í athugasemdum við 5. gr. í frumvarpi, sem varð að lögum nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þar segir m.a. að skilyrðinu sé ætlað að koma í veg fyrir nýmyndanir sem brjóta í bág við íslenskar orðmyndunarreglur, t.d. þríliðuð nöfn. Nöfn eins og Guðmundrún, Guðmundpáll og Ragnhildmundur eru því óheimil. Eiginnafnið Þórsteinunn fellur í sama flokk og þau dæmi sem að framan eru nefnd. Á það er því ekki heimilt að fallast.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Þórsteinunn (kvk.) er hafnað.

 

 

 

Mál nr. 25/2012                    Eiginnafn:     Benidikta

 

Hinn 14. maí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 25/2012 en erindið barst nefndinni 7. maí.

Eiginnafnið Benidikta (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Benidiktu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Benidikta (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 26/2012                    Eiginnafn:     Náttúlfur

 

Hinn 14. maí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 26/2012 en erindið barst nefndinni 7. maí.

Eiginnafnið Náttúlfur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Náttúlfs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Náttúlfur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 27/2012                    Eiginnafn:     Lísbeth

 

Hinn 14. maí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2012 en erindið barst nefndinni 7. maí:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Nafnið Lísbeth er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem h er ekki ritað á eftir t. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

  1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
    5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi. 

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár ber engin kona nafnið Lísbeth í þjóðskrá og því er ekki unnt að fallast á nafnið.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lísbeth (kvk.) er hafnað.

 

 

 

Mál nr. 29/2012                    Eiginnafn:     Bestla

 

Hinn 14. maí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 29/2012 en erindið barst nefndinni 7. maí:

Eiginnafnið Bestla (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Bestlu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bestla (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 30/2012                    Eiginnafn:     Maximus

 

Hinn 14. maí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 30/2012 en erindið barst nefndinni 7. maí:

Eiginnafnið Maximus (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Maximusar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Maximus (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum