Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 1. febrúar 2012

Mál nr. 104/2011 Eiginnafn: Ektavon

Millinafn: Ektavon

Hinn 1. febrúar 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 104/2011 en erindið barst nefndinni 20. desember:

Í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn segir: Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn. Eðlilegt er að líta svo á að nafnið Ektavon sé samsett úr fyrri liðnum ekta og síðari liðnum von. Síðari liðurinn er kvenkynsorð og kvenmannsnafnið Von er á mannanafnaskrá. Því er ekki mögulegt að fallast á beiðni um eiginnafnið Ektavon sem karlmannsnafn.

Af þessu tilefni skal tekið fram að Ektavon uppfyllir ákvæði 6. gr. laganna, um millinöfn. Millinafnið Ektavon er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Því er mögulegt að samþykkja millinafnið Ektavon.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ektavon (kk.) er hafnað.

Beiðni um millinafnið Ektavon er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 1/2012 Millinafn: Helgfell

Hinn 1. febrúar 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 1/2012 en erindið barst nefndinni 25. janúar:

Millinafnið Helgfell er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Helgfell uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Helgfell er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 2/2012 Eiginnafn: Úlftýr

Hinn 1. febrúar 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 2/2012 en erindið barst nefndinni 25. janúar:

Eiginnafnið Úlftýr (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Úlftýs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Úlftýr (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 3/2012 Eiginnafn: Nicoletta

Hinn 1. febrúar 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 3/2012 en erindið barst nefndinni 25. janúar:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Ritháttur nafnsins Nicoletta (kvk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls enda er bókstafurinn c ekki í íslensku stafrófi. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

  1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
    5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár ber engin kona eiginnafnið Nicoletta sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna.

Eiginnafnið Nicoletta uppfyllir þar af leiðandi ekki öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Nicoletta (kvk.) er hafnað.

Mál nr. 4/2012 Eiginnafn: Voney

Hinn 1. febrúar 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 4/2012 en erindið barst nefndinni 27. janúar:

Eiginnafnið Voney (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Voneyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Voney (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 5/2012 Eiginnafn: Amír

Hinn 1. febrúar 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 5/2012 en erindið barst nefndinni 27. janúar:

Eiginnafnið Amír (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Amírs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Amír (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 6/2012 Eiginnafn: Siv

Hinn 1. febrúar 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 6/2012 en erindið barst nefndinni 31. janúar:

Með úrskurði 29. desember 2006 hafnaði mannanafnanefnd beiðni um nafnið Siv með rökstuðningi þar sem nafnið Siv teljist ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og rithátturinn hafi ekki áunnið sér hefð í málinu.

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Þar sem ritháttur nafnsins Siv (kvk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls er aðeins heimilt að fallast á umbeðinn rithátt ef hann telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

  1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
    5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár bera níu konur eiginnafnið Siv sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna og er sú elsta þeirra fædd árið 1948. Það telst því vera hefð fyrir þessum rithætti.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Siv (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 7/2012 Eiginnafn: Ermenga

Hinn 1. febrúar 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 7/2012 en erindið barst nefndinni sama dag:

Eiginnafnið Ermenga (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ermengu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ermenga (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum