Hoppa yfir valmynd
15. desember 2011 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 8. desember 2011

Mál nr. 88/2011                    Eiginnafn:     Tía

 

Hinn 8. desember 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 88/2011 en erindið barst nefndinni 29. nóvember:

Eiginnafnið Tía (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Tíu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 
 

Mál nr. 89/2011                    Eiginnafn:     Bertram

 

Hinn 8. desember 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 89/2011 en erindið barst nefndinni 29. nóvember:

Eiginnafnið Bertram (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Bertrams, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bertram (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 90/2011                    Millinafn:       Aðaldal

 

Hinn 8. desember 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 90/2011 en erindið barst nefndinni 7. desember:

Millinafnið Aðaldal er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Aðaldal uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Aðaldal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 


Mál nr. 91/2011                    Millinafn:       Krossdal

 

Hinn 8. desember 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 91/2011 en erindið barst nefndinni 7. desember:

Millinafnið Krossdal er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Krossdal uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 Úrskurðarorð:

 Beiðni um millinafnið Krossdal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


 

Mál nr. 92/2011                    Eiginnafn:     Jósebína

 

Hinn 8. desember 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 92/2011 en erindið barst nefndinni 7. desember:

Eiginnafnið Jósebína (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jósebínu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jósebína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 
 

Mál nr. 93/2011                    Eiginnafn:     Trú

 

Hinn 8. desember 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 93/2011 en erindið barst nefndinni 30. nóvember:

Eiginnafnið Trú (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Trúar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Trú (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum