Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2001 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 1-10/2001 úrskurðir 1. febrúar 2001

Ár 2001, fimmtudaginn 1. febrúar, er fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsakynnum Orðabókar Háskóla Íslands, Neshaga 16, Reykjavík. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál eru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 1/2001, Begga (kvk.)

Úrskurðarbeiðendur: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Kvenmannsnafnið Begga tekur eignarfallsendingu (Beggu) og fullnægir því skilyrðum 1. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um kvenmannsnafnið Begga er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 2/2001

Eiginnafn: Vinný (kvk.)

Úrskurðarbeiðendur: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Kvenmannsnafnið Vinný tekur eignarfallsendingu(Vinnýjar) og fullnægir því skilyrðum 1. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 ummannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um kvenmannsnafnið Vinný er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 3/2001, Jóhan (kk.)

Úrskurðarbeiðandi: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Jóhan telst ekki vera ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og engin hefð er fyrir þessum rithætti í íslensku, sbr. 2. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um nafnið Jóhan er hafnað.

Mál nr. 4/2001

Eiginnafn: Galdur (kk)

Úrskurðarbeiðendur: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Karlmannsnafnið Galdur tekur eignarfallsendingu (Galdurs) og fullnægir því skilyrðum 1. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um karlmannsnafnið Galdur er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 5/2001

Eiginnafn: Nathan (kk.)

Úrskurðarbeiðandi: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nathan telst ekki vera ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og engin hefð er fyrir þessum rithætti í íslensku, sbr. 2. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um nafnið Nathan er hafnað.

Mál nr. 7/2001, eiginnafn: Enóla (kvk.)

Úrskurðarbeiðandi: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Kvenmannsnafnið Enóla tekur eignarfallsendingu (Enólu) og fullnægir því skilyrðum 1. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um kvenmannsnafnið Enóla er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

mál nr. 8/2001

Eiginnafn: Aríele (kvk.)

Úrskurðarbeiðandi: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Aríele telst ekki vera ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og engin hefð er fyrir þessum rithætti í íslensku, sbr. 2. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um nafnið Aríele er hafnað.

Mál nr. 9/2001

Kenninafn: Kjartans

Úrskurðarbeiðandi: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Ekki er talið að uppfyllt séu skilyrði IV. kafla laga nr. 45/1986 um mannanöfn til að úrskurðarbeiðandi geti notað kenninafnið Kjartans á barn sitt.

Úrskurðarorð:

Beiðni um kenninafnið Kjartans er hafnað.

Mál nr. 10/2001

Eiginnafn: Edel (kvk.)

Úrskurðarbeiðandi: XXX

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Kvenmannsnafnið Edel tekur eignarfallsendingu (Edelar) og fullnægir því skilyrðum 1. ml. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um kvenmannsnafnið Edel er tekin til greina og verður það fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum