Hoppa yfir valmynd
24. mars 2010 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 24. mars 2010

Mál nr. 11/2010                    Eiginnafn:     Bentey

 

Hinn 24. mars 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 11/2010:

Eiginnafnið Bentey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Benteyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bentey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 17/2010                    Eiginnafn:     Elíndís

 

Hinn 24. mars 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 17/2010:

Eiginnafnið Elíndís (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Elíndísar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Elíndís (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum