Hoppa yfir valmynd
10. júní 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 10. júní 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, miðvikudaginn 10. júní, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði G. Óskarsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:

 

1.         Mál nr.  48/2009         Eiginnafn:        Alanta  (kvk.) 

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Alanta (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist Alöntu í aukaföllum.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Alanta  (kvk.)  er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsendingu þess, Alöntu.

 

--------------------------------------------

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum