Hoppa yfir valmynd
23. september 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 23. september 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, miðvikudaginn 23. september, var haldinn fundur í mannanafnanefnd að Neshaga 16, Reykjavík. Mætt voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Baldur Sigurðsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:

 

1.         Mál nr.  70/2009         Eiginnafn / ritháttur:  Sidney  (kvk.)  og  Sydney  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Mál þetta, sem móttekið var með tölvupósti 17. júlí 2009, var tekið fyrir á fundum mannanafnanefndar 20. júlí og 10. ágúst 2009 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

 

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef það brýtur í bág við önnur ákvæði 5. gr. laganna, þ.e. 2. málslið 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 5. gr.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum: 

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Nöfnin Sidney og Sydney eru að útliti svipuð og kvenmannsnöfn sem enda á –ey í íslensku, dæmi: Anney, Arney, Árney, Bjarney og fleiri nöfn af því tagi. Í öllum þessum íslensku nöfnum eru skil orðhluta á undan –ey. Hvað varðar orðhlutafræðilega gerð nafnsins þá er orðhlutinn –ney- ekki til í íslensku máli.

 

Nöfnin Sidney og Sydney brjóta í bág við íslenskt málkerfi á tvennan hátt. Í fyrsta lagi er nafnið ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem samstafan -idn- / -ydn- er ekki til í íslensku ritmáli. Að auki er samstafan –dn- sjaldgæf og kemur nánast aðeins fyrir á orðhlutaskilum. Orðin baldni, blendni, blindni, fyndni eru því ekki sambærileg við Sidney eða Sydney því að þar er n-ið viðskeyti.

 

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár er engin kona skráð með eiginnöfnin Sidney eða Sydney sem uppfyllir skilyrði ofangreindra laga og vinnulagsreglna. Eiginnöfnin Sidney (kvk.) og Sydney  (kvk.) uppfylla þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á þau.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Sidney (kvk.) og Sydney (kvk.) er hafnað.

 

  

---------------------------------------------

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum