Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2002 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 16. ágúst 2002

Þann 16. ágúst 2002, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

 

Mál nr. 45/2002

Eiginnafn: Sandel (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Sandel tekur eignarfallsendingu (Sandels) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sandel er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 46/2002

Eiginnafn: Adríel (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Adríel tekur eignarfallsendingu (Adríels) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Adríel er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 47/2002

Eiginnafn: Addi (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Addi tekur eignarfallsendingu (Adda) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Addi er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 48/2002

Eiginnafn: Nikolas (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginafnið Nikolas telst vera ritmynd af eiginnafninu Nikulás og skal fært á mannanafnaskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Nikolas er tekin til greina og skal fært á mannanafnaskrá sem ritmynd af Nikulás.

 

Mál nr. 49/2002

Eiginnafn: Engla (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Engla tekur eignarfallsendingu (Englu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Engla er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 50/2002

Millinafn: Höfðdal

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Millinafnið Höfðdal telst fullnægja 2. mgr. 6. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Höfðdal er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 51/2002

Eiginnafn: Fía (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Fía tekur eignarfallsendingu (Fíu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Fía er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 52/2002

Eiginnafn: Demus (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Demus tekur eignarfallsendingu (Demusar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Demus er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 53/2002

Eiginnafn: Stefan (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginafnið Stefan telst vera ritmynd af eiginnafninu Stefán og skal fært á mannanafnaskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Stefan er tekin til greina og skal fært á mannanafnaskrá sem ritmynd af Stefán.

Mál nr. 54/2002

Eiginnafn: Adela (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Adela tekur eignarfallsendingu (Adelu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Adela er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 55/2002

Eiginnafn: Annamaría (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Annamaría telst ekki myndað í samræmi við almennar nafnamyndunarreglur íslensks máls og telst því brjóta í bága við íslenskt málkerfi. Þá hefur Annamaría ekki unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Annamaría er hafnað.

 

Mál nr. 56/2002

Eiginnafn: Dyljá (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Dyljá telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og fullnægir því ekki 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dyljá er hafnað.

 

Mál nr. 57/2002

Eiginnafn: Garri (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Garri tekur eignarfallsendingu (Garra) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Garri er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 58/2002

Beiðni um aðlögun erlends nafns að íslensku.

Með bréfi Hagstofu Íslands dags. 9. ágúst 2002, er með vísan til 22. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, óskað úrskurðar um beiðni XXX, um að breyta rithætti eiginnafns XX úr Anzhela í Angela, sbr. 4. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996 til hliðsjónar, svo nafnið verði lagað að íslensku máli í þjóðskrá.

Mannanafnanefnd telur lagaskilyrði uppfyllt og er fallist á framangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á beiðni um breytingu á rithætti úr Anzhela í Angela.

 

Mál nr. 59/2002

Beiðni um aðlögun erlends nafns að íslensku.

Með bréfi Hagstofu Íslands dags. XXX, er með vísan til 22. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, óskað úrskurðar um beiðni XXX, um að breyta rithætti eiginnafna dóttur sinnar úr Marie í María og úr Aurelia í Árelía, sbr. 4. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996 til hliðsjónar, svo nöfnin verði löguð að íslensku máli í þjóðskrá.

Mannanafnanefnd telur lagaskilyrði uppfyllt og er fallist á framangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á beiðni um breytingu á rithætti úr Marie Aurelia í María Árelía.

 

 

Mál nr. 60/2002

Eiginnafn: Torfheiður (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Torfheiður tekur eignarfallsendingu (Torfheiðar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Torfheiður er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 61/2002

Breyting á rithætti: Reginbaldur í Reginbald (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Reginbald telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki telst hefð fyrir slíkum rithætti. Reginbald fullnægir því ekki 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um breytingu á rithætti úr Reginbaldur í Reginbald er hafnað.

 

 

 

Fleira ekki gert, fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum