Hoppa yfir valmynd
8. maí 2002 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 8. maí 2002

Þann 8. maí 2002, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 32/2002

Eiginnafn: Karlína (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Karlína tekur eignarfallsendingu (Karlínu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Karlína er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 33/2002

Eiginnafn: Liisa (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Liisa telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og fullnægir því ekki 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Liisa er hafnað.

Mál nr. 34/2002

Eiginnafn: Katharína (kvk)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Katharína telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og fullnægir því ekki 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Katharína er hafnað.

Mál nr. 35/2002

Eiginnafn: Tímon (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Tímon tekur eignarfallsendingu (Tímonar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tímon er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 36/2002

Eiginnafn: Jóa (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Jóa tekur eignarfallsendingu (Jóu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jóa er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 37/2002

Eiginnafn: Sybilla (kvk)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Sybilla telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og fullnægir því ekki 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sybilla er hafnað.

Mál nr. 38/2002

Eiginnafn: Kai (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Kai telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki telst vera hefð fyrir slíkum rithætti. Kai fullnægir því ekki 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kai er hafnað.

Mál nr. 39/2002

Breyting á rithætti: Sesar í Cesar (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Cesar telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki telst hefð fyrir slíkum rithætti. Cesar fullnægir því ekki 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um breytingu á rithætti úr Sesar í Cesar er hafnað.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum