Hoppa yfir valmynd
22. desember 2007 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 22. desember 2007

FUNDARGERÐ

Ár 2007, laugardaginn 22. desember, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreint mál var tekið fyrir:

1.         Mál nr.  69/2007         Millinafn:         Hörðdal

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Millinafnið Hörðdal er dregið af íslenskum orðstofnum og hefur ekki nefnifallsendingu. Það hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Hörðdal uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Hörðdal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

---------------------------------------------------------

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum