Hoppa yfir valmynd
26. september 2008 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 26. september 2008

FUNDARGERÐ

Ár 2008, föstudaginn 26. september, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreint mál var tekið fyrir:

 

1.         Mál nr.  58/2008         Eiginnafn:        Þjóðann  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Í máli þessu var upphaflega farið fram á samþykki fyrir eiginnöfnunum Jórekur og Þjóðan (kk.) en í símtali við móður barnsins afturkallaði hún beiðni sína um samþykki beggja nafnanna og sótti þess í stað um eiginnafnið Þjóðann (kk.).

 

Eiginnafnið Þjóðann (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Þjóðann – um Þjóðan – frá Þjóðani – til Þjóðans.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Þjóðann (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsendingu þess, Þjóðans.

 

 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum