Hoppa yfir valmynd
28. júlí 2008 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 28. júlí 2008

FUNDARGERÐ

Ár 2008, mánudaginn 28. júlí, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Fundurinn fór fram að Bergstaðastræti 50, Reykjavík. Mættar voru Ágústa Þorbergsdóttir og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir en Baldur Sigurðsson, sem var utan-bæjar, var í símasambandi á fundinum. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

 

1.         Mál nr. 40/2008          Eiginnafn:        Rúbar  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Rúbar (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Rúbar – um Rúbar – frá Rúbari – til Rúbars.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Rúbar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

2.         Mál nr. 41/2008          Eiginnöfn:       Josefine  (kvk.) og   Jósefín  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Josefine er algengt kvenmannsnafn víða um lönd og hefur verið ritað Jósefína á íslensku. Nafnið Josefine tekur ekki íslenska eignarfallsendingu, rithátturinn er ekki í samræmi við ritreglur íslensks máls og nafnið hefur ekki tíðkast hér á landi nema fyrir áhrif erlendis frá. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár eru aðeins tvær konur skráðar með eiginnafnið Josefine sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna og er sú eldri þeirra fædd árið 1989. Því telst ekki vera hefð fyrir þessum rithætti. Eiginnafnið Josefine uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Í máli þessu er þess krafist, að verði beiðni um eiginnafnið Josefine hafnað, sé sótt um eiginnafnið Jósefín. Eiginnafnið Jósefín (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Jósefín – um Jósefín – frá Jósefín – til Jósefínar.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Josefine (kvk.) er hafnað.

Beiðni um eiginnafnið Jósefín (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Jósefínar, og sem ritmynd eiginnafnsins Jósefína.

 

 

 

3.         Mál nr. 42/2008          Eiginnafn:        Sofie  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

 

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Sofie er algengt kvenmannsnafn víða um lönd og hefur verið ritað Soffía á íslensku eða Sofía. Nafnið Sofie tekur ekki íslenska eignarfallsendingu, rithátturinn er ekki í samræmi við ritreglur íslensks máls og nafnið hefur ekki tíðkast hér á landi nema fyrir áhrif erlendis frá. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár eru sex Íslendingar (konur) skráðar með eiginnafnið Sofie sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna og er sú elsta þeirra fædd árið 1925. Eiginnafnið Sofie telst því hafa áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 og c-lið vinnulags-reglna mannanafnanefndar frá 14. nóvember 2006.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sofie (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd eiginnafnsins Soffía (kvk.).

 

 

 

4.         Mál nr. 43/2008          Eiginnafn:        Þróttur  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Þróttur (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Þróttur – um Þrótt – frá Þrótti – til Þróttar.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Þróttur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsendingu þess, Þróttar.

 

 

 

5.         Mál nr. 44/2008          Eiginnafn:        Snæbjartur  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Snæbjartur (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Snæbjartur – um Snæbjart – frá Snæbjarti – til Snæbjarts.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Snæbjartur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfalls-endingu þess, Snæbjarts. 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

Kolbrún Linda Ísleifsdóttir  (sign)

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum